Þú ert hér://Tag: Hafsteinn Níelsson

Oh, my Cod!

2025-07-05T10:21:32+00:004. júlí 2025|

Það var mikið hrópað og hlegið í sal 1 í Háskólabíó þegar Afturámóti frumsýndi rapp/rokk-óperuna Þorskasögu eftir Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson. Hafsteinn leikstýrir sjálfur en hefur Kristin Óla Haraldsson með sér sem dramatúrg.  Glitrandi hreisturbúninga hannaði Hulda Kristín Hauksdóttir, tónlistarstjóri er Kolbrún Óskarsdóttir, afar mínimalíska leikmynd hannaði Egle Sipaviciute en kórstjórn sá Hanna Ragnarsson [...]

„Kærleikur er leikur þar sem allir taka þátt“

2024-10-17T12:51:46+00:0016. október 2024|

Ég hafði aldrei heyrt um Sviðslistakórinn Viðlag fyrr en í gær þegar ég sá sýningu hans Við erum hér í Tjarnarbíó – ef ég hefði heyrt um hann fyrr hefði ég sótt um inngöngu. Þetta er alveg áreiðanlega hressasti hópurinn á svæðinu um þessar mundir, minnir oft á leikhópinn Hugleik á hans fjölmennustu og fjörugustu [...]

Elskaðu náunga þinn

2024-08-11T16:46:58+00:0011. ágúst 2024|

Geim/vélmenna/stuðsöngleikurinn Vitfús Blú eftir Egil Andrason var frumsýndur í gærkvöldi hjá Afturámóti í Háskólabíó. Meðhöfundar eru Hafsteinn Níelsson og Kolbrún Óskarsdóttir. Tónlistin er líka eftir Egil og hana flytur sex manna hljómsveit á sviðinu af gífurlegu fjöri. Árið er 3033. Þrjú þúsund ár eru liðin frá krossfestingu Jesú sonar Maríu og vélmennin hafa í raun [...]

Þetta er ungt og leikur sér

2023-11-08T22:57:46+00:008. nóvember 2023|

Ég hef alls ekki fylgst nógu vel með fyrirbærinu Ungleik gegnum tíðina, þó að þau fáu skipti séu verulega minnisstæð. Og í gær sá ég fjögur stutt verk undir þessari yfirskrift í Tjarnarbíó og það var vægast sagt hressandi upplifun. Auglýst er eftir handritum og getur fólk á aldrinum 16–25 ára sent inn í samkeppnina. [...]