Sagan af Flumbru og sveinunum átta
Möguleikhúsið frumsýndi í dag í menningarmiðstöðinni Gerðubergi leikgerð Péturs Eggerz af hinni ástsælu sögu Guðrúnar Helgadóttur, Ástarsögu úr fjöllunum. Leikgerð er kannski dálítið stórt orð því í rauninni er þetta fremur sögustund en leiksýning. Alda Arnardóttir segir söguna með fjörugum sönglögum eftir Guðna Franzson sem hún flytur ásamt Kristjáni Guðjónssyni tónlistarmanni. Þá munar mikið um litríkan [...]