Þjóðarbrot
Eiríkur Örn Norðdahl: Gæska. Mál og menning, 2009. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2010. Í nýjustu skáldsögu Eiríks Arnar Norðdahl, Gæsku, blandast margháttaðar formtilraunir þematískum átökum við samtímann. Stílbrögðin reyna á þanþol bókmenntagreinarinnar og vekja um leið athygli á miðlunaraðferð verksins. Jafnvel mætti ganga svo langt að segja að skáldsagan hlutgeri tungumálið; hún [...]