Ég um mig frá mér til mín
Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi Bara smástund á stóra sviðinu í gærkvöldi, ekta franskan gamanleik eftir Florian Zeller undir vel hugsaðri leikstjórn Álfrúnar Helgu Örnólfsdóttur. Sverrir Norland þýddi einkar lipurlega. Við erum stödd í glæsiíbúð Michels (Þorsteinn Bachmann) og Nathalie (Sólveig Arnarsdóttir) sem Helga Stefánsdóttir hefur búið húsgögnum og listaverkum af smekkvísi. Michel er kampakátur því að [...]