Geturðu fyrirgefið?

2019-06-12T11:04:46+00:0015. febrúar 2014|

Málamyndahópurinn rannsakar eðli fyrirgefningar í mannlegu samfélagi í leikverki Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur, Fyrirgefðu ehf, sem var frumsýnt í Tjarnarbíó í gærkvöldi undir stjórn höfundar. Sviðið er eftir Rebekku A. Ingimundardóttur, einfalt og snjallt, og leikur vel með ljósum Arnars Ingvarssonar. Í verkinu bregða fjórir leikarar sér í fjölmörg hlutverk starfsmanna og skjólstæðinga fyrirtækisins Fyrirgefðu ehf [...]