Þú ert hér://Tag: Duncan Macmillan

Lífið séð í ljósi dauðans

2019-03-13T17:11:27+00:0015. september 2018|

Áður en ég settist við að skrifa um sýninguna Allt sem er frábært eftir Duncan Macmillan, sem var frumsýnd á litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi, las ég viðtal við Charlotte Bøving í Fréttablaði dagsins. Þar segir hún frá sýningu sem hún er að vinna um dauðann, séðan frá lífinu. Mér fannst þetta skondið af því [...]

Dagar afneitunar og þjáningar

2019-03-15T09:56:24+00:0014. apríl 2018|

Ég ímynda mér að fleiri leikhúsgestum hafi verið svipað innanbrjósts og mér í lok sýningar á Fólki, stöðum og hlutum í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi: að vona og treysta því að þurfa aldrei að fara í fíkniefnameðferð. Leikrit Duncans Macmillan er djarft að því leyti að það er langt og fer með áhorfendur í gegnum hrylling [...]

Eru tvisvar tveir fjórir eða fimm?

2019-04-30T11:36:15+00:0016. september 2017|

Það var auðvitað stórfurðulegt að sitja við Nýja svið Borgarleikhússins að kvöldi viðburðaríks dags með stjórnarslitum og valdsmannslegri ræðu forsætisráðherra og horfa á frumsýningu á 1984, leikgerð Roberts Icke og Duncans MacMillan á sígildri skáldsögu Georges Orwell. Heyra sífellt vísað til óendanlegs og takamarkalauss valds „Flokksins“ sem öllu ræður í fortíð og nútíð, sem breytir [...]

Annað gott fólk

2019-05-03T14:28:17+00:006. febrúar 2017|

Það er dálítið skondið í ljósi nýlegrar umræðu um sýninguna sem nú gengur í Kassa Þjóðleikhússins að hlusta á unga fólkið í leikritinu Andaðu í Iðnó velta fyrir sér aftur og aftur hvort þau séu ekki gott fólk. Þau velta þessu fyrir sér af því þau – eða sérstaklega stúlkan (Hera Hilmarsdóttir) – finna til [...]

Hvað er barn mörg tonn af CO2?

2019-05-08T17:07:22+00:0022. febrúar 2016|

Ég sá það á netinu að þegar Andaðu (Lungs) eftir Duncan Macmillan var sýnt í breska Þjóðleikhúsinu þá tók það 80 mínútur. Miðað við næstum tveggja klukkustunda leiklestur Heru Hilmarsdóttur og Þorvalds Davíðs Kristjánssonar í Iðnó í kvöld hefur það væntanlega verið stytt þarna úti því þau Hera og Þorvaldur voru sannarlega ekki að slóra [...]