Gerðarmál – eða För Gerðar
Gerður Kristný. Blóðhófnir. Mál og menning 2010. Úr Tímariti Máls og menningar, 2. hefti 2011. Í ljóðabókinni Blóðhófnir sækir Gerður Kristný sér efnivið til eddukvæðabálksins Skírnismála og af fagmennsku og með feminísku sjónarhorni smíðar hún áhrifaríkt listaverk sem á skilið allt það lof sem á það hefur verið borið og færði henni Íslensku bókmenntaverðlaunin. Blóðhófnir [...]