Mala domestica
Það var söguleg stund í gærkvöldi í margra huga þegar fagnað var innilega í fullum Eldborgarsal Hörpu frumsýningu íslenskrar óperu í fullri lengd um sögulegt íslenskt efni. Söngvurunum í Ragnheiði var tekið með kostum og kynjum í uppklappinu, einkum Elmari Gilbertssyni sem söng hlutverk Daða Halldórssonar, Þóru Einarsdóttur sem söng titilhlutverkið og Viðari Gunnarssyni sem [...]