Með augum Gratíönu
Benný Sif Ísleifsdóttir. Hansdætur. Mál og menning 2020, 342 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 3. hefti 2021 Í upphafskafla skáldsögunnar Hansdætra bregður höfundur upp mynd af fjölskyldu sem er að flytja úr sjóblautum kjallara í Bótarbugt, fátækrahverfi sem stendur í fjöruborðinu á litlu sjávarþorpi, í betra húsnæði ofar í þorpinu. Fjölskyldan samanstendur af Evlalíu, [...]