About Silja Aðalsteinsdóttir

This author has not yet filled in any details.
So far Silja Aðalsteinsdóttir has created 267 blog entries.

„Inn með ástarengilinn“

2025-03-05T12:38:07+00:005. mars 2025|

Í gærkvöldi sá ég sýningu Herranætur á söngleiknum Ástin er diskó, lífið er pönk í Gamla bíó. Leikstjóri er Katrín Guðbjartsdóttir en danshöfundur Júlía Kolbrún Sigurðardóttir. Í afar myndríkri leikskrá eru ávörp aðstandenda sýningarinnar og fyrri formanna Herranætur m.m. en hvergi er getið höfundar leiktextans né þeirra söngva sem sungnir eru. Ég þekkti auðvitað ýmis [...]

Ævintýri eru ekki bara ævintýri

2025-03-02T16:19:05+00:002. mars 2025|

Leikhópurinn Kriðpleir frumsýndi verkið Innkaupapokann eftir Elísabetu Jökulsdóttur og leikhópinn á Litla sviði Borgarleikhússins á föstudagskvöldið. Leikmynd og búningar eru eftir Ragnheiði Maísól Sturludóttur og Sigrúnu Hlín Sigurðardóttur sem báðar leika líka í sýningunni en dramatúrgíu sjá þau um Bjarni Jónsson og Snæfríður Sól Gunnarsdóttir. Tónlist og hljóðmynd er eftir Benna Hemm Hemm en lýsingin [...]

Skipstjórafrúin býður heim

2025-02-16T10:37:23+00:0016. febrúar 2025|

Sólbjört Sigurðardóttir sýndi einstaklingsverk sitt Grímu í Listaháskólanum um helgina. Leikstjóri og höfundur með henni er Gígja Hilmarsdóttir og þær stöllur sáu sjálfar um leikmyndina. Textann vinna þær úr samnefndri skáldsögu eftir Benný Sif Ísleifsdóttur (2018). Sólbjört ræðst ekki í neitt smáverkefni að láta skipstjórafrúna Grímu lifna við í stuttu leikverki. Upprunalega verkið er 370 [...]

Kafteinn Frábær kemur til bjargar

2025-02-13T11:20:25+00:0013. febrúar 2025|

Ævar Þór Benediktsson og MurMur frumsýndu í gærkvöldi í Tjarnarbíó einleikinn Kafteinn Frábær eftir breska leikskáldið Alistair McDowall. Ævar Þór þýðir verkið sjálfur, leikstjóri er Hilmir Jensson, flókin og í hæsta máta merkingarbær ljósahönnunin er eftir Ólaf Ágúst Stefánsson en skikkju ofurhetjunnar sem kom til ýmissa nota hannaði Ásdís Guðný Guðmundsdóttir. Tónlistin er eftir Svavar Knút [...]

Þeim var ég verst

2025-02-09T12:41:23+00:009. febrúar 2025|

Í gærkvöldi var frumsýning á Söguloftinu í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Þar sagði Vilborg Davíðsdóttir okkur Laxdæla sögu – eins og má ímynda sér að sögumenn í baðstofum fortíðar hafi sagt hana, hver á sinn hátt. Vilborg hefur unnið með þessa Íslendingasögu lengi og það er ekki bara að hún kunni hana, hún hefur hana algerlega [...]

Andvökunótt á heimili hjartalæknisins

2025-02-08T12:50:02+00:008. febrúar 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi í Kassanum nýtt leikrit eftir Hrafnhildi Hagalín, Heim. Leikstjóri er þjóðleikhússtjóri sjálfur, Magnús Geir Þórðarson. Búninga og leikmynd hannaði Filippía I. Elísdóttir, lýsinguna Björn Bergsteinn Guðmundsson en algerlega göldrótt tónlistin var eftir Gísla Galdur Þorgeirsson. Heim er klassískt að byggingu, gerist á einum stað á tæpum sólarhring, frá síðdegi, yfir kvöld [...]

Holdið er torvelt að temja

2025-02-07T14:31:09+00:007. febrúar 2025|

Það er óperuhátíð í Reykjavík. Þrjár óperur, tvær gamlar, ein ný, eru nú sýndar í þrem húsum í höfuðstaðnum. Svo skemmtilega vill til að þær fjalla allar meira og minna um sama fólkið og eins og það sé ekki nóg þá tengjast sýningarnar innbyrðis á hinn skondnasta máta: aðaldívan í einni er hljómsveitarstjóri í annarri, [...]

Brúðkaup á vínekrunni

2025-02-04T16:30:12+00:003. febrúar 2025|

Kammeróperan frumsýndi í gær á Nýja sviði Borgarleikhússins Brúðkaup Fígarós eftir W.A. Mozart. Texta Da Ponte þýddi Bjarni Thor Kristinsson og aðlagaði stórskemmtilega auk þess sem hann leikstýrir uppfærslunni. Tíu manna hljómsveit er bakatil á sviðinu og tónlistarstjóri er Elena Postumi. Leikmyndina hannaði Eva Björg Harðardóttir, Andri Unnarson sá um búninga en lýsingin var í [...]

Ef þú giftist, ef þú bara giftist …

2025-02-02T14:13:27+00:002. febrúar 2025|

Í gærkvöldi frumsýndi Magnús Thorlacius leikrit sitt Skeljar í Ásmundarsal við Freyjugötu. Hann leikstýrir sjálfur en Ástrós Hind Rúnarsdóttir var aðstoðarleikstjóri. Tónlist og hljóðmynd átti Katrín Helga Ólafsdóttir. Nafnið á verkinu vísar í tvennt, annars vegar skeljarnar sem þau hjónaleysin Hólmfríður Hafliðadóttir og Vilberg Pálsson tína á ströndinni í upphafsatriðinu og hins vegar skeljarnar sem [...]

Happaþrennan

2025-02-04T16:23:01+00:002. febrúar 2025|

Það er óttalegt vesen að vera prinsessa, eins og þær gera okkur ljóst söng- og leikkonurnar í Raddbandinu sem í gærdag frumsýndu í Tjarnarbíó  eigin söngleik fyrir alla fjölskylduna, Hver vill vera prinsessa? Sara Martí leikstýrir og samdi verkið með þeim en Stefán Örn Gunnlaugsson samdi lögin ásamt prinsessu 9, Rakel Björk Björnsdóttur. Gullfallegar lifandi [...]