Meiri Mozart í Salnum

25. nóvember 2006 · Fært í Fréttir 

Í tilefni þess að á árinu eru liðin 250 ár frá fæðingu Wolfgangs Amadeusar Mozarts hefur píanóleikarinn Miklós Dalmay ráðist í það þrekvirki að æfa allar píanósónötur tónskáldsins, átján að tölu. Miklós mun flytja þær allar á fernum TÍBRÁR tónleikum í Salnum, fjögur mánudagskvöld í röð.

Tónleikar númer tvö eru næstkomandi mánudagskvöld 27. nóvember og hefjast þeir kl. 20, þeir þriðju verða 4. desember og þeir síðustu 11. desember. Mozart lést í Vínarborg 5. desember árið 1791.

Nánari upplýsingar…. 

MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER KL. 20

TÍBRÁ: PÍANÓSÓNÖTUR MOZARTS – HEILDARFLUTNINGUR II

EFNISSKRÁ:

Píanósónata nr. 6 í D-dúr K. 284/205b

Píanósónata nr. 7 í C-dúr K. 309

HLÉ

Píanósónata nr. 8 í a-moll K. 310

Píanósónata nr. 9 í D-dúr K. 311