Myndlistin um helgina
![]() |
| Afrískur minjagripur í Gerðubergi. |
Sýningin á afrísku minjagripunum er unnin í samstarfi við Ólöfu Gerði Sigfúsdóttur mannfræðing hjá ReykjavíkurAkademíunni. Hún safnaði gripum sem Íslendingar hafa viðað að sér í Afríku eða frá Afríku þótt keyptir séu annars staðar. Ljósmyndasýningin er eftir Ara Sigvaldason og er haldin í tilefni 220 ára afmælis Reykjavíkurborgar. Þar sjáum við borgarbúa með auga ljósmyndarans sem myndar þá úr launsátri. Sýningarnar standa báðar til 12. nóvember og er opin virka daga kl. 11-17 en kl. 13-16 um helgar. Það er ókeypis inn.
Í dag kl. 16.30 verður opnuð í Þjóðarbókhlöðu sýningin Sú þrá að þekkja og nema … til heiðurs Jónasi Jónassyni frá Hrafnagili, hinum þekkta þjóðfræðingi og presti sem fæddist fyrir 150 árum. Hann samdi grundvallarritið um hátterni Íslendinga um aldir, Íslenska þjóðhætti, og verður lesið úr því verki við opnunina. Þar les Ragnheiður Steindórsdóttir líka úr smásögum Jónasar og leikararnir Jóhann Sigurðarson og Jóhanna Vigdís Arnardóttir flytja ásamt Jóhanni G. Jóhannssyni söngva úr Ævintýri á gönguför í þýðingu Jónasar. Sýningin stendur til 31. desember.
Á morgun kl. 13 hefst svo málþing um Jónas frá Hrafnagili og verk hans í Þjóðarbókhlöðu. Þar segir Halldóra J. Rafnar frá ævi Jónasar, Terry Gunnell fjallar um hann í alþjóðlegu samhengi, Árni Björnsson talar um sporgöngumenn Jónasar, Hjalti Hugason fjallar um Jónas sem guðfræðing og prest, Viðar hreinsson um sagnagerð hans og Rósa Þorsteinsdóttir um Jónas og þjóðsögurnar. Aðalheiður Guðmundsdóttir stýrir þinginu.
Myndlistarmaðurinn fjölhæfi Steinunn Marteinsdóttir heldur um þessar mundir yfirlitssýningu á verkum sínum í fjörutíu ár, 1961-2000, í Listasafni Reykjanesbæjar í Duushúsum, Keflavík. Nú bætir hún um betur og opnar á morgun kl. 14 sýningu á nýjum verkum í Listasal Mosfellsbæjar hjá Bókasafni Mosfellsbæjar, Þverholti 2. Sýningin heitir Lifandi land – lifandi vatn og stendur til 14. október. Hún er opin á opnunartíma bókasafnsins, mán.-fös. kl. 12-19 en 12-15 á laugardögum.
Loks skal minnt á að framundan er síðasta sýningarhelgi hinnar vinsælu sýningar Listasafns Íslands Landslagið og þjóðsagan. Harpa Björnsdóttir listfræðingur verður með leiðsögn um sýninguna á sunnudaginn kl. 14.
