Skáldskapur frá Hjaltlandi

31. ágúst 2006 · Fært í Fréttir 
Lise Sinclair frá Friðarey, ein af góðum gestum frá Hjaltlandi.

á dagskrá í Norræna húsinu á sunnudaginn

Fjórir rithöfundar frá Hjaltlandseyjum koma fram og lesa úr verkum sínum í Norræna húsinu sunnudaginn 3. september kl. 16. Einnig verður flutt tónlist og þýðingar á hjaltlenskum skáldskap.
 
Heimsókn höfundanna er að frumkvæði Menningarstofnunar Hjaltlands og er liður í að kynna bókmenntir eyjanna fyrir umheiminum. Höfundarnir fjórir eru: Lise Sinclair, ljóðskáld og tónlistarmaður frá Friðarey, sem er miðja vegu milli Orkneyja og Hjaltlands, Donald S. Murrey, ljóðskáld, frá Suðureyjum en búsettur á Hjaltlandi, Matthew Wright, smásagnahöfundur, frá Orkneyjum en búsettur á Hjaltlandi og Jen Hadfield, ljóðskáld frá Englandi og staðarskáld á Hjaltlandi. Þeir Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Gyrðir Elíasson koma einnig fram ásamt höfundunum fjórum og lesa úr þýðingum sínum á verkum þeirra.
 
Hjaltlandseyjar, sem eru fyrir norðan Skotland, voru í eina tíð byggðar norrænum mönnum og þar var allt fram á 19. öld töluð norræna. Enn þann dag í dag koma örnefni á eyjunum Íslendingum kunnuglega fyrir sjónir og þótt enska hafi lengi verið ráðandi tungumál á þessum slóðum er á Hjaltlandi töluð mállýska sem allmargir rithöfundar hafa tileinkað sér sem ritmál í seinni tíð.
 
Dagskráin í Norræna húsinu er ókeypis og öllum opin