Dansunnendur athugið: Pina Bausch kemur til Íslands

25. ágúst 2006 · Fært í Fréttir 

Fjórar sýningar á verki hennar Aqua í Borgarleikhúsinu í sept.

Hið heimsfræga Wuppertal dansleikhús undir stjórn Pinu Bausch er væntanlegt til Íslands. Pina Bausch er einn áhrifamesti sviðslistamaður seinni tíma og er mikill fengur fyrir íslenska áhorfendur að fá að njóta snilli hennar. Aqua er stórbrotin sýning sem unnin var í samráði við borgina Sao Paolo í Brasilíu. Pina hefur ferðast um allan heim með sýningar sínar og unnið mörg verka sinna í samráði við borgir sem hún hefur heillast af. Hver veit nema Pina verði uppveðruð af Reykjavík en eitt er víst að Reykjavík kemur til með að verða uppveðruð af Pinu.

Pina kemur ásamt fríðu föruneyti því um 50 manns koma að Aqua.  Aðeins fjórar sýningar verða á Aqua, 17.,18.,19. og 20 september. Miðasala er í Borgarleikhúsinu.