Nýjasta skáldsaga Gabríels García Márquez á íslensku
![]() |
og fleiri nýjar bækur fyrir splunkunýtt sumar
Bókin heitir því ögrandi nafni Minningar um döpru hórurnar mínar. Sögumaður er einhleypur karl, uppgjafa blaðamaður á dagblaði, kennari og pistlahöfundur á lélegum eftirlaunum. Hann er orðinn óttalegt ræksni, en gagntekinn af þessari hugmynd sinni hringir hann í hórumömmuna Rosu Cabarcas og biður hana að liðsinna sér. Ég er ekki komin miklu lengra í bókinni ennþá en gef skýrslu að lestri loknum. Þýðandi er Kolbrún Sveinsdóttir og Mál og menning gefur út.
Umsögnin er komin, sjá slóðina http://www.tmm.is/default2.asp?strAction=getPublIntro&intCatId=112
Frá sama útgefanda kemur bókin Verndum þau eftir Ólöfu Ástu Farestveit uppeldis- og afbrotafræðing og Þorbjörgu Sveinsdóttur sálfræðing sem báðar starfa í Barnahúsi. Í bókinni freista þær þess að kenna þeim sem starfa með börnum og unglingum að bregðast við grunsemdum um ofbeldi sem þau kunna að vera beitt. Í níu köflum fara þær gegnum vandamálin og lausnir þeirra, ofbeldi sem börn eru beitt, skyldur og hlutverk foreldra og þeirra sem starfa með börnum og unglingum, hvernig á að ráða fólk í slík störf, hvernig á að bregðast við ofbeldisfrásögn, hvað á að segja við fjölmiðla, hvernig barnavernd er upp byggð hér á landi og refsivörslukerfið, lagaumhverfið og lokaorð. Eins og ekki hefur farið framhjá fólki hafa starfsmenn á stofnunum fyrir börn orðið uppvísir að kynferðislegu ofbeldi, bæði hér á landi og í grannlöndunum, auk þess sem ofbeldi gegn börnum er vaxandi vandamál í samfélaginu yfirleitt. Þetta eru einhverjar viðbjóðslegustu fréttir sem maður les eða heyrir, og brýnt að gefa fólki leiðbeiningar til að bregðast við grunsemdum um slíka glæpi.
Allt annars eðlis og mun meira aðlaðandi er bókin Meðlæti eftir danska súperkokkinn Charlotte Grönlykke (er ekki merkilegt hvað nöfn fólks eru oft sannspá um smekk þess og framtíðarstörf?), fagurlega myndskreytt af Lars Gundersen ljósmyndara. Vaka-Helgafell gefur út. Hér eru ótal réttir til að elda með fiskinum, kjúklingnum eða steikinni – eða hafa bara sem aðalrétt. Hún byrjar á freistandi kartöfluuppskriftum, fer svo yfir í hrísgrjónin og baunirnar og þaðan í grænmetið, ferskt og niðursoðið, kryddblöndur, sósur, ídýfur og soð. Erna G. Árnadóttir þýðir.
Svo komu líka tvær harðspjaldabækur hjá Máli og menningu handa litlum höndum, Ruglaða kamelljónið og Frá toppi til táar. Þær eru báðar eftir Eric Carle, hugmyndaríkan bandarískan listamann, en verk hans hafa notið gríðarlegra vinsælda um allan heim um áratuga skeið.
