Ástarljóð
![]() |
| Atli Heimir hefur samið yndisleg lög við sígild ljóð Jónasar. Nokkur þeirra verða flutt á tónleikunum. |
ÓLAFUR RÚNARSSON TENÓR OG PETER FORD PÍANÓ
LJÓÐATÓNLEIKAR Í TÍBRÁ
þriðjudagskvöldið 4. apríl 2006 kl. 20
Næstkomandi þriðjudagskvöld 4. apríl kl. 20 halda þeir Ólafur Rúnarsson tenórsöngvari og Peter Ford, píanóleikari ljóðatónleika í Salnum. Efnisskráin samanstendur af tveim lagaflokkum, Dichterliebe eftir Róbert Schumann og On this Island eftir breska snillinginn Benjamin Britten. Auk þess flytja þeir Ólafur og Peter vor- og ástarljóð Jónasar Hallgrímssonar við lög eftir Atla Heimi Sveinsson.
Ólafur Rúnarsson nam söng á Íslandi og hélt síðan til framhaldsnáms í Skotlandi. Óhætt er að fullyrða að Ólafur hafi sungið frá frumbernsku, og tekið þátt í fjölþættu kórstarfi um árabil. Hann hefur þegar sungið í ýmsum óperuuppfærslum, en kemur nú fram á TÍBRÁR tónleikum í fyrsta sinn ásamt píanóleikaranum Peter Ford. Ford á að baki langt tónlistarnám í fiðluleik, píanóleik og hljómsveitarstjórn.
Miðasala er hafin í Salnum og á netinu www.salurinn.is
Miðaverð: 2.000/1.600 kr
Sími í miðasölu er 5 700 400 NETSALA www.salurinn.is
Miðasala Salarins er opin virka daga kl. 9.00 – 16.00 og klst. fyrir tónleika.
Aðalstyrktaraðili Salarins
______________________________________________________________________________
Nánari upplýsingar…
EFNISSKRÁ
Benjamin Britten: On This Island
Atli Heimir Sveinsson: Ástarljóð Jónasar
Vorljóð Jónasar, Atla og Heine
HLÉ
Robert Schumann: Dichterliebe
UM FLYTJENDUR
Ólafur Rúnarsson nam söng undir leiðsögn Sieglinde Kahmann í Tónlistarskólanum í Reykjavík, og Bergþórs Pássonar í Söngskólanum. síðar lá leið hans til Skotlands þar sem hann sótti óperudeild Konunglegu Akademíunnar í Glasgow undir leiðsögn Peters Wilson.
Í Skotlandi söng hann ýmis hlutverk m.a. Idomeneo, Oronte úr Alcinu, Teketil í L’enfant et les Sortilege, Lenski í Onegin, Male chorus í Rape of Lucretia. Eftir útskrift hefur Ólafur sungið Don Jose, Jenik í Seldu Brúðinni, Alfredo í Leðurblökunni Primo Soldato Consoli and Famigliari í Poppeu og Hannibal í Happy End með Sumaróperunni og Herra Bumble í Óliver hjá Leikfélagi Akureyrar.
Ólafur söng í ýmsum kórum s.s. Hamrahlíðarkórnum, Módettukórnum, Hljómeyki og Langholtskórnum. Á árunum 1989-1992 var fulltrúi Íslands í Heimskór Æskufólks (World Youth Choir)
Ólafur hefur tekið þátt í ýmsum meistaranámskeiðum, s.s. Sir Thomas Allen, Dame Felicity Lott, Benjamin Luxon, Jennifer Hamilton, Laura Brooks-Rice, John Shirey Quirk, Andreas Smith, Phyllis Bryn-Julson, Jennifer Lane, Ian Partridge, Phillip Langridge og Susan Webb.
Peter Ford byrjaði ungur að læra á fiðlu undir leiðsögn Daphne Handford-Moody, Hann hefur tekið þátt í meistaranámskeiðum hjá Robert Jacoby, Emanuel Hurwitz og félögum úr Medici og Fitzwilliam kvartettunum. Einnig hefur hann lagt stund á nám í hljómsveitarstjórnun undir leiðsögn Colins Howards og George Hurst.
Eftir þrálát meiðsli lagði hann fiðluna til hliðar og sneri sér að píanónámi. Hann útskrifaðist frá University of London, einnig útskrifaðist hann með diploma próf frá Guildhall School og Music and Drama og the Associated Board of the Royal Schools of Music leiðsögn Marks Marshalls. Næstkomandi haust mun hann hefja framhaldsháskólanám.
Peter hefur verið iðinn við hjómsveitarstjórnun og hefur stjórnað m.a. Brúðkaupi Figarós, Don Giovanni, Carmen og Leðurblökunni. Einnig senum úr Óperudraugnum, Vesalingunum og Into the Woods eftir Sondheim. Hann er listrænn stjórnandi Winterbourne óperunnar.
