Íslensk raunvísindi á upplýsingaröld

28. mars 2006 · Fært í Fréttir 
Dauði Eggerts Ólafssonar

Málþing í Þjóðarbókhlöðu á laugardaginn

Félag um átjándu aldar fræði heldur málþing í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðu á 2. hæð laugardaginn 1. apríl nk. Hefst það kl. 13.30 og lýkur um kl. 16.30.  Flutt verða fjögur erindi sem hér segir:

 Magnús  Stephensen og rafkrafturinn. Einar H. Guðmundsson, prófessor í stjarneðlisfræði

Náttúrufræðingurinn Eggert Ólafsson. Sigurður Steinþórsson, prófessor í jarðfræði

 KAFFIHLÉ

 Greinilig Vegleidsla til Talnalistarinnar kennslubók í reikningi frá 1780 eftir Ólaf Olavius. Kristín Bjarnadóttir, lektor í stærðfræðimenntun

 Samtímaheimildir um Skaftárelda. Yfirlit yfir framlag Jóns Steingrímssonar, Sæmundar Hólm og Magnúsar Stephensen.  Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, kennari við Edinborgarháskóla.

Flutningur hvers erindis tekur um 20 mínútur. Um 10 mínútur gefast til fyrirspurna og umræðna að loknu hverju erindi. Fundarstjóri verður Ingi Sigurðsson, prófessor í sagnfræði.

Útdrættir úr erindum  liggja frammi á málþinginu. Þeir verða síðar aðgengilegir á heimasíðu félagsins: www.akademia.is/18.oldin

Veitingar verða fáanlegar í veitingastofu Þjóðarbókhlöðu á 2. hæð.

Fréttir af aðalfundi 2006

Aðalfundur Félags um átjándu aldar fræði var haldinn 11. febrúar í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðu.  Stjórn félagsins skipa eftir fundinn Ragnhildur Bragadóttir, formaður, Sigurður Pétursson, varaformaður, Ólöf Garðarsdóttir, ritari, Helga K. Gunnarsdóttir, gjaldkeri, og meðstjórnendurnir Árni Daníel Júlíusson, Áslaug Sverrisdóttir, Ingi Sigurðsson, Steinunn Haraldsdóttir og Svavar Sigmundsson. Félagar eru nú um 200 talsins. Samþykkt var að árgjald skyldi vera óbreytt, 1.200 kr.

Greiðsluseðill vegna árgjalds 2006 verður sendur félögum með tilkynningu um sumarferð félagsins, um mánaðamótin maí–júní. Stjórnin                                                                                       

Málþing á næstu misserum og árum

Í undirbúningi eru ýmis málþing sem félagið heldur á næstu misserum og árum. Í því viðfangi má nefna að 4. nóvember 2006 verður haldið málþing um ástir og örlög á átjándu og nítjándu öld í framhaldi af málþingi sem félagið hélt 5. nóvember sl.,

í febrúar 2007 verður haldið málþing í tilefni þess að á því ári verða liðnar þrjár aldir frá því að stórabóla barst til landsins, og í febrúar 2009 verður haldið málþing í tilefni þess að á árinu verða liðnar tvær aldir frá valdaskeiði Jörundar hundadagakonungs hér á landi.

Ferð um Reykjanesskaga 10. júní 2006

Hin árlega sumarferð félagsins verður farin laugardaginn 10. júní. Að þessu sinni verður farin dagsferð um Reykjanesskaga. Lagt verður af stað frá Þjóðarbókhlöðu kl. 8.30 og komið til baka að kvöldi. Fararstjóri verður Þór Magnússon, fyrrverandi þjóðminjavörður.

Meðal viðkomustaða verða þessir: Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd, minnismerki um Jón Þorkelsson (Thorchillius) og Sveinbjörn Egilsson í Innri-Njarðvík, Keflavík (Byggðasafn Reykjanesbæjar verður skoðað), Garðskagaviti, Hvalsnes, rústir Básendakaupstaðar (hann tók af í miklu sjávarflóði árið 1799; bent skal á grein Lýðs Björnssonar, „Básendaflóðið 1799“, í Vefni (http://bok.hi.is/vefnir/) 2006), Sandgerði, Hafnir, Reykjanesviti, Grindavík, Selatangar (þar eru miklar minjar um sjósókn á fyrri tíð) og Krýsuvík.

Tólfta alþjóðaráðstefnan um upplýsinguna í Montpellier 8.–15. júlí 2007

Heimssamtök félaga um átjándu aldar fræði, International Society for Eighteenth-Century Studies, halda, í samvinnu við heimamenn, tólftu alþjóðaráðstefnuna um upplýsinguna í Montpellier í Frakklandi 8.–15. júlí 2007.

Meginefnissvið ráðstefnunnar er skilgreint á ensku sem hér segir: „Knowledge, Techniques and Cultures in the 18th Century“.

Ekki liggur fyrir hvert ráðstefnugjald verður. En greint hefur verið frá því að þátttakendum í ráðstefnunni stendur til boða mjög ódýr gisting: eins manns herbergi með morgunverði í sjö nætur fyrir samtals 150 evrur (samsvarar nú um 13.000 kr.).

Um þessar mundir er unnt að ferðast fram og aftur frá Keflavík til Montpellier fyrir tæplega 40.000 kr., sé far pantað með góðum fyrirvara. Er þá gengið út frá því að flogið sé milli Keflavíkur og Parísar (Charles de Gaulle-flugvallar) og ferðast með hraðlest milli áðurnefnds flugvallar og Montpellier (ferðatími um 4 klst.). Upplýsingar um ráðstefnuna má finna á vefslóðinni http://www.congreslumieres2007.org

Fólk getur bókað sig á vefslóðinni, sér að kostnaðarlausu, sem viðtakendur allra tilkynninga varðandi ráðstefnuna er aðstandendur hennar senda út um heim í tölvupósti.

Á næstunni verða birtar á vefslóðinni ítarlegri upplýsingar en áður um ráðstefnuna, þ.á m. um frest til að bjóða fram efni þar.

Ferð um söguslóðir í París og nágrenni í júlí 2007

Strax að lokinni tólftu alþjóðaráðstefnunni um upplýsinguna efnir félagið til ferðar um söguslóðir í París og nágrenni, og verður hún hliðstæð ferð um söguslóðir í Skotlandi sem farin var 3.–9. ágúst sl. Nánari upplýsingar um ferðina verða sendar félögum um mánaðamótin maí–júní nk., með tilkynningu um sumarferð félagsins.

Þess skal getið að afráðið hefur verið að þar næsta utanlandsferð félagsins verði farin til Berlínar, Potsdam og Dresden í ágúst 2009.

Félag um átjándu aldar fræði, veffang: www.akademia.is/18.oldin

Vefnir. Tímarit Félags um átjándu aldar fræði: http://bok.hi.is/vefnir/