Langar þig að skrifa sakamálaleikrit?

23. febrúar 2006 · Fært í Fréttir 
Katrín Jakobsdóttir er fremsti sérfræðingur okkar um íslenskar glæpasögur.

Borgarleikhúsið auglýsir samkeppni um leikritasmíð

Sakamál á svið!

Borgarleikhúsið efnir til samkeppni um íslenskt sakamálaleikrit.

Opinn umræðufundur, um íslensk sakamál og íslenska dægurmenningu, verður haldinn í tengslum við samkeppni um íslenskt sakamálaleikrit sem Borgarleikhúsið stendur fyrir um þessar mundir.

Fundurinn verður haldinn þriðjudagskvöldið 28. febrúar kl.20 í forsal Borgarleikhússins og er opinn öllum.

Af hverju eru sakamál svona vinsæl á Íslandi?

Eru íslensk sakamál frábrugðin sakamálum annarra landa?

Eiga sakamál erindi upp á íslensk leiksvið?

Þetta eru nokkrar spurningar sem Davíð Þór Jónsson þýðandi, Katrín Jakobsdóttir íslenskufræðingur, Ævar Örn Jósepsson sakamálahöfundur og Anna Th. Rögnvaldsdóttir, kvikmyndaleikstjóri og höfundur Allir litir hafsins eru kaldir, munu svara og velta fyrir sér ásamt gestum.

Samkeppnin er öllum opin og eiga drög að sakamálaleikverki að berast Borgarleikhúsinu fyrir 31.maí. Handrit skulu innihalda, fléttu, senuskipan og persónur. Handrit skal vera útprentað í umslagi merkt “Sakamál á svið” og nafn höfundar viðlagt í lokuðu umslagi, merktu verkinu. Leitað er að þremur til sex verkum til frekari þróunar og vinnslu í leikhúsinu á leikárinu 2006-2007.
 
Nánari upplýsingar veita Guðjón Pedersen, gio@borgarleikhus.is og
Steinunn Knútsdóttir, steinunn@borgarleikhus.is