Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna
![]() |
| Sjón hefur ekki fengið Íslensku bókmenntaverðlaunin ennþá, en hann er Norðurlandameistari fyrir Skugga-Baldur. |
og Vesturnorrænu barnabókaverðlaunanna
Freistandi er að fara í örstuttan ágiskunarleik, einkum út frá umsögnum fjölmiðla um bækur. Eftirfarandi val er því ekki að öllu leyti byggt á eigin lestri:
Sjón: Argóarflísin – Steinunn Sigurðardóttir: Sólskinshestur – Hallgrímur Helgason: Rokland – Jón Kalman Stefánsson: Sumarljós, og svo kemur nóttin – Guðrún Eva Mínervudóttir: Yosoy
Sama dag, 1. desember, verður einnig tilkynnt um tilnefningar til Vestunorrænu barnabókaverðlaunanna en þau eru veitt annað hvert ár og verða veitt í þriðja sinn næsta sumar. Lagðar eru fram þrjár bækur, ein frá hverju landanna í ráðinu, Íslandi, Grænlandi og Færeyjum. Íslendingar hafa unnið í bæði fyrri skiptin. 2002 hlutu Andri Snær Magnason og Áslaug Jónsdóttir verðlaunin fyrir Söguna af bláa hnettinum og 2004 Kristín Steinsdóttir og Halla Sólveig Þorgeirsdóttir fyrir Engil í vesturbænum.
