Halldór Guðmundsson ritstjóri Skírnis

28. nóvember 2005 · Fært í Fréttir 
Halldór Guðmundsson – spennandi ritstjóraval.

Skírnir er elsta tímarit sem nú kemur út á Norðurlöndum og sjálfsagt þótt víðar væri leitað, hefur komið út síðan 1827. Það var framan af almennt fréttatímarit en hefur sinnt bókmenntum og heimspeki síðustu áratugi. Það verður einkar gaman að sjá hvað Halldór gerir við þetta virðulega rit.

Skírnir var lengi ársrit en hefur komið út tvisvar á ári síðan 1986. Haustheftið 2005, síðasta hefti Svavars og Sveins, er ekki komið út.