Verðlaun Norðurlandaráðs veitt í dag
![]() |
| Ný bók um leið og verðlaun eru móttekin fyrir þá næstu á undan. Vel að verið. |
Sjón hlýtur bókmenntaverðlaunin fyrir Skugga-Baldur
Sagan Skugga-Baldur er lesendum Tímarits Máls og menningar vel kunn því þar hefur bæði birst umsögn um bókina eftir Kristján Árnason bókmenntafræðing (í 2. hefti TMM 2004) og grein eftir Ármann Jakobsson (í 3. hefti 2005). Í næsta hefti sem væntanlegt er úr prentsmiðju 15. nóvember er langt viðtal við Sjón um feril hans allt frá því þegar hann orti fyrstu ljóðin fimmtán ára gamall.
Í dag kemur út ný bók eftir Sjón, Argósarflísin, sem er hluti af alþjóðlegri ritröð um og út frá goðsögnum eins og sagt var frá hér á síðunni í vikunni sem leið. Þetta er snjöll saga, unnin að hluta upp úr hinni miklu frásögn af gríska kappanum Jasoni Esonarsyni sem fór fræga háskaför á skipinu Argó til að leita gullna reyfisins ásamt hópi af hetjum og kvæntist Medeu í ferðalok. Svo langt komast Argóarfarar ekki í bók Sjóns því sögumanni hans, Keneifi, dvelst á Lemney sem aðeins er byggð konum.
Keneifur er ekki eini sögumaður Argósarflísarinnar því hann segir frá við kvöldverðarborð í dönsku flutningaskipi árið 1949 og meðal áheyrenda hans er gamall og fjölreyndur Íslendingur, Valdimar Haraldsson, sem líka hefur frá ýmsu að segja.
Þetta er listilega skrifuð saga sem á eftir að gleðja unnendur goðsagna og góðra bókmennta yfirleitt.
