Dagbók flettarans hálfan ágúst
![]() |
| Jónas fluttur út á afmælisárinu. |
“Sú kona sem hefur verið fyrirmynd mín er Vigdís Finnbogadóttir” er fyrirsögnin á lifandi og skemmtilegu viðtali við Ingunni Wernersdóttur, einstæða móður og skattadrottningu Íslands, í Viðskiptablaðinu 3. ágúst. Bein afleiðing af vali á fyrirmynd er að Ingunn gerir sig gildandi í listaheiminum og menningunni, eins og Björgólfur Guðmundsson, styrkir m.a. Sjónlistaverðlaunin og á Stradivariusfiðluna sem Hjörleifur Valsson leikur á. Hún stefnir meira að segja að því að koma á fót samtímalistasafni í samkeppni við Safn. Þó er Ingunn menntaður skurðstofuhjúkrunarfræðingur svo verið gat að heilbrigðiskerfið fengi að njóta ávaxtanna af fjárfestingum hennar. Nýtist þá menntunin í hennar nýja lífi, spyr Arna Schram, og Ingunn er ekki í vafa um það: “Maður lítur öðrum augum á lífið eftir að hafa starfað sem hjúkrunarfræðingur.”
Ég man ekki hver það var en einhver kvartaði undan því við mig í sumar að jafnan væru höfð rangt eftir ummæli Megasar þegar hann tók við verðlaunum Jónasar Hallgrímssonar um árið, sagt að hann hefði talað um “bunch of money”. En Sverrir Norland hefur þau rétt eftir í Mogga 3. ágúst í myndartexta með grein um meira og minna hallærislega enska texta við íslensk dægurlög: “Böns af monní”. Þetta “af” er afgerandi, sagði viðmælandi minn, Megas var að tala íslensku þótt hann sletti ensku. Grein Sverris er líka orð í tíma töluð. Heyr fyrir Bubba, Ólöfu Arnalds, Megasi og öllum sem leggja hugsun og vinnu í íslenska texta við lögin sín. Þar er sálin, eins og Ólöf segir. “Það er einsog ýmsir haldi að skrefið til frægðar sé stigið til hálfs um leið og menn klæmast eitthvað á útlensku,” segir Sverrir og trúir því ekki. Ekki ég heldur.
Björn Þór Vilhjálmsson gerir heimasíður stóru bókaforlaganna að umtalsefni í Lesbókargrein 4. ágúst og ræðir ímyndir þeirra. Það minnir mig á að nú verður maður að reyna að venja sig af því að tala um “Eddu-útgáfu” - þegar maður var nýbúinn að venja sig almennilega á það! Nú verður það aftur Mál og menning og Vaka-Helgafell … En hvað verður um Almenna bókafélagið? Verður það forlag? Eða úrelt lógó?
Ingunn Wernersdóttir var hjúkrunarfræðingur, Bjarni Ármannsson var tölvufræðingur sem vissi minna en ekki neitt um megafjármál þegar Pétur Blöndal sjanghajaði hann inn í banka nýútskrifaðan, eins og kemur fram í fallegu viðtali Kollu við Bjarna í Blaðinu 4. ágúst. Að kvöldi fyrsta dagsins í vinnunni gerðist hann svo djarfur að spyrja hvað “ávöxtunarkrafa” væri eiginlega. Alveg er ég viss um að hann hefur ekki skilið orðið fittkostnaður heldur.
“Jónas fluttur út” sagði Moggi 4. ágúst og átti ekki við Jónas Sen þó að hann sé alltaf að þvælast með Björk í útlöndum heldur Jónas Hallgrímsson sem Atli Heimir og Fífilbrekkuhópurinn hafa verið að kynna í Kanada og Bandaríkjunum. Lög Atla við ljóð Jónasar eru mörg algerir eyrnaormar sem maður losnar ekki við eftir fyrstu hlustun, enda tóku menn vestanhafs geysivel við þessu indæla efni. Það var heldur ekkert slorlið sem flutti músíkina og söngvararnir voru snillingarnir Hulda Björk Garðarsdóttir og Eyjólfur Eyjólfsson. Til stendur að flytja dagskrána í Kaupmannahöfn og London líka. Og loks hér heima.
Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður “fer glöð til vinnu að morgni” að því er segir í Mogga 9. ágúst. Daginn áður hlaut hún norrænu hönnunarverðlaunin Ginen sem kunnugt er. Fötin hennar eru listaverk og kannski verður maður listaverk við að klæðast þeim. Ég hef ekki prófað ennþá.
Bráðskemmtilegur bakþanki Dr. Gunna á Fréttablaðinu 9.ágúst um Kringluna árið 2067 minnti mig á ritgerðarefni hjá Skeggja í 12 ára bekk: Hvar verð ég og hvernig verður árið 2000. Mig minnir að ég hafi komist að þeirri niðurstöðu að allt væri breytt nema mannlegt eðli. Doktorinn á von á að jafnvel það breytist því hjá honum eru kennarar orðnir helstu skattakóngar þarna 67!
Sú afbragðsgóða bók Gauragangur verður kvikmynduð á næstunni samkvæmt frétt í Fréttablaðinu 10. ágúst. Verst að Ingvar E. skuli ekki geta leikið Orm, hann gerði það svo vel í Þjóðleikhúsinu um árið. En hvað er ég að segja, auðvitað getur Ingvar leikið hann!
Tröllasögur segir Fréttablaðið líka frá og með 14. ágúst af stórstjörnum í leiksýningu Gísla Arnar Garðarssonar eftir bíómyndinni Tilsammans. Ég trúi þegar ég tek á því að Gael Garcia Bernal og Daniel Brühl leiki á íslensku sviði! Annað sem ég á bágt með að trúa er að ekki verði nema eitt kvenhlutverk í sýningunni, mannað af Nínu Dögg Filippusdóttur. Fáðu fleiri stelpur með þér, Nína Dögg, í guðs bænum, annars verður þetta engin kommúna.
