Laglegar limrur
![]() |
Alveg sama hvar maður ber niður, þær eru allar skondnar limrurnar hans Antons Helga. Þarna hittir maður ýmsar persónur, til dæmis Huldu sem leysir af sem birgðastjóri hjá Kaupfélagi Patreksfjarðar, hygginn ráðgjafa, Bíbí, grandalausan morgunhana, Jónu, Önnu Lísu, Lúlla vin, Nonna og Baldur magister.
Nonni er einmitt á eintali við Baldur þegar hann segir: “Svo hissa ég höfðinu sný: / Við heila er kvenþjóðin frí.” Og Baldur svarar: “Sá vandi er slunginn, / þær vantar sko punginn / sem vant er að geyma hann í.” Og ekki á hún illa við á þessum árstíma sú næsta, “Bíbí straujar angistina”: “Alltaf svo kokhraust á útsölur fer ég / þó ergir mörg summan, það sver ég / – en korti ég veifa / það kvíðann vill deyfa: / Ég kaupi og þess vegna er ég.”
Góða skemmtun!
