Nýtt tímaritshefti 1.10.

24. febrúar 2010 · Fært í Óflokkað 

Út er komið nýtt hefti af Tímariti Máls og menningar þar sem að vanda kennir margra grasa.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skrifar greinina Háskaleg og ósjálfbær samfélagstilraun þar sem hún gerir tilraun til að greina það sem fór úrskeiðis í íslensku samfélagi og leiddi til efnahagshrunsins 2008; Þorsteinn Antonsson hefur rannsakað eftirlátin gögn Elíasar Marar og fundið ýmislegt áhugavert sem hann gerir nánari grein fyrir í heftinu; Sigríður Þorgrímsdóttir frá Garði skrifar um móður sína, skáldkonuna Jakobínu Sigurðardóttur og segir frá tilurð Snörunnar og Árni Heimir Ingólfsson segir frá starfsemi Musica Nova á sjöunda áratugnum þegar Atli Heimir og Magnús Blöndal voru í fararbroddi og sömdu geysi framúrstefnulega tónlist sem reyndi stundum æði mikið á þolrifin í hlustendum og náði hámarki með heimsókn kóreska listamannsins Nam June Paik hingað til lands.  Árni Finnsson gerir grein fyrir stöðunni í lofstlagsmálum eftir ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn en Stefán Pálsson tók sig til og las hrunbækurnar svokölluðu og gerir grein fyrir þeim í kjölfarið, auk þess sem Silja Aðalsteinsdóttir gerir upp síðasta leikár. Að auki eru smásögur í heftinu, ljóð, ádrepur og ritdómar.

Tímaritið kemur út fjórum sinnum á ári og kostar áskrift 6000 krónur. Hægt er að hringja í 5755600 eða senda tölvupóst: tmm@forlagid.is.