Málþing um Einar Braga skáld

13. maí 2009 · Fært í Fréttir 

á Þórbergssetri í Suðursveit.

Málþingið um Einar Braga hefst kl. 14 á uppstigningardegi 21. maí og lýkur kl. 14 á föstudeginum 22. maí. Fluttir verða fyrirlestrar um lífsstarf Einars Braga út frá ýmsum sjónarhornum, sem og um önnur “atómskáld”. Lesið verður úr bókum Einars Braga, en einnig farið í heimsókn að Sléttaleiti. Einar Bragi skrifaði þrjár bækur með fróðleik um Suðursveit undir heitinu Þá var öldin önnur, þar er m.a. fjallað um búskaparhætti á Sléttaleiti á fjórða áratug síðustu aldar. Þar bjó þá Sveinn Einarsson móðurbróðir Einars, en Einar dvaldi hjá þeim hjónum á Sléttaleiti um tíma.
Guðrún Sveinsdóttir frá Sléttaleiti endurbyggði bæjarhúsið og ánafnaði síðan Rithöfundasambandi Íslands húsið í minningu foreldra sinna og bróður. En einnig til að heiðra minningu frænda síns Einars Braga skálds sem var hestastrákur í Sléttaleiti sumarið 1935. Þar eru ýmsar minjar sem tengjast skáldinu og verkum hans sem gaman er að skoða. Áður hafði Einar Bragi haft forgöngu um að endurbyggja smiðjuna á Sléttaleiti til að framfylgja heiti Sveins, smiðjan gæti verið að grunni til sú sama og Ingimundur Þorsteinsson forfaðir Kvískerjabræðra byggði þar, en hann flutti bæinn frá Steinum að Sléttaleiti árið 1829 eftir stórflóð og grjóthrun úr fjallinu.

DAGSKRÁ

Fimmtudagur 21. maí

14:00 Pétur Gunnarsson. Einar Bragi, samtímamaður vor.
14:30 Eysteinn Þorvaldsson: “Ég sem orðum ann.” Um ljóð Einars Braga.
15:10 Kaffihlé
15:30 Fjölnir Torfason: Af mönnum ertu kominn.
16:00 Heimsókn á Sléttaleiti.

19:00 Hátíðarkvöldverður með skemmtidagskrá

Föstudagur 22. maí

9-10 Morgunverður
10:00 Guðbjörn Sigurmundsson: Um ljóð Stefáns Harðar Grímssonar.
10.30 Soffía Auður Birgisdóttir: Um sjálfsæviskrif Einars Braga.
11:00 Kaffihlé
11:20 Svavar Steinarr Guðmundsson: “Af ímynduðum fundi Heideggers og  Sigfúsar Daðasonar við Miollis-torg í Provence.”
11:50 Hádegisverður
13:00 Aðalsteinn Ásberg. “Í mildu frjóregni.” Um ljóðaþýðingar Einars Braga.
13:30 Jórunn Sigurðardóttir: Um Einar Braga og samískar bókmenntir
14:00 Þingslit.
Málþing Þórbergsseturs eru nú árlegur viðburður og hefur alltaf verið góð aðsókn. Það er von okkar að sem flestir leggi leið sína í Suðursveit þessa daga til að njóta skemmtunar, fróðleiks og útiveru. Að málþinginu standa að þessu sinni Háskólasetrið á Höfn Hornafirði, Þórbergssetur og Rithöfundasamband Íslands.

Hægt verður að fá gistingu á Hala, hali@hali.is, sími 478 1073, á Gerði bjornborg@centrum.is, sími 478 1905, á Smyrlabjörgum, smyrlabjorg@ smyrlabjorg.is sími 478 1074.og Skálafelli,skalafell@simnet.is . Sími 478- 1041
Máltíðir verða seldar á Þórbergssetri. Verð fyrir þá sem taka allar máltíðir kr. 6000
Nánari upplýsingar um málþingið veitir Soffía Auður Birgisdóttir, verkefnastjóri á Háskólasetrinu á Höfn. Sími 4708042 og 8482003. Netfang: soffiab@hi.is

Athygli er vakin á að vorsýningar í Þórbergssetri eru opnar. Það eru sýningarnar Sagnalist, fermingarsögur  og málverkasýning Öldu Ármanna, Konan í forgrunni.

Allir velkomnir!