Leikritunarsjóðurinn Prologos

29. janúar 2009 · Fært í Fréttir 

auglýsir eftir umsóknum

Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum vegna annarrar úthlutunar úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar, en úthlutað verður í byrjun mars.

Markmið Leikritunarsjóðsins Prologos er að hlúa að leikritun á Íslandi og efla höfundastarf við Þjóðleikhúsið, sem og að stuðla að framþróun og eflingu leiklistarinnar. Prologos veitir árlega* *allt að fimm höfundum styrk til að vinna að leikhandriti, en einnig eru veittir styrkir vegna leiksmiðjuverkefna. Úthlutað er úr sjóðnum þrisvar á ári.

Annars vegar er auglýst eftir hugmynd að leikriti. Við umsókn skal leggja fram lýsingu á verkinu á 2 blaðsíðum, nokkrar síður af leiktexta og stutta ferilskrá höfundar. Höfundur getur hlotið 600.000 kr. styrk til að vinna að handritsdrögum. Á síðari stigum getur höfundur hlotið viðbótarstyrk til að fullvinna handritið.

Hinsvegar er auglýst eftir hugmynd að leiksmiðju- eða tilraunaverkefni.

Við umsókn skal leggja fram lýsingu á verkefninu á 2 blaðsíðum, ásamt lista yfir þátttakendur. Einnig skulu stuttar ferilskrár þátttakenda fylgja.

Umsóknir skal senda með tölvupósti á netfangið prologos@leikhusid.is eða í almennum pósti, merktar: Þjóðleikhúsið, Prologos, Lindargötu 7, 101 Reykjavík.

Fagráð sjóðsins fjallar um innsendar umsóknir og mælir með verkefnum, en

stjórn sjóðsins tekur ákvörðun um úthlutun. Í fagráði Prologos sitja

Melkorka Tekla Ólafsdóttir, Pétur Gunnarsson og Stefán Jónsson. Í

sjóðstjórn sitja Bjarni Ármannsson, Kristbjörg Kjeld og Tinna

Gunnlaugsdóttir.

 

  

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Þjóðleikhússins, www.leikhusid.is, eða fá með því að senda tölvupóst á prologos@leikhusid.is <mailto:prologos@leikhusid.is>