HUGLEIKUR HREIÐRAR UM SIG Í HAFNARHÚSINU
28. október 2008 · Fært í Fréttir
![]() |
í tilefni af stórafmæli
Leikfélagið Hugleikur sýnir stuttverkadagskrána
Ó, þessi tæri einfaldleiki í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Dagskráin samanstendur af níu nýjum stuttverkum sem eiga það sammerkt að hafa afmæli sem þema. Sýningin markar þannig upphafið á afmælisári Hugleiks sem fagnar 25 ára starfsafmæli sínu leikárið 2008-2009. Leikstjórn stuttverkanna er í höndum félagsmanna, en tónlistarflutningi stjórnar Gunnar Ben. Sýningarnar verða aðeins þrjár og hefjast allar kl. 20:00. Frumsýning er föstudag 31. október en hinar sýningarnar fylgja í kjölfarið á laugardag 1. nóvember og sunnudag 2. nóvember. Miðasala er í gegnum netfangið hugleikur@hugleikur.is
