Dagur raddarinnar í Gerðubergi

23. október 2008 · Fært í Fréttir 
Diddú er meðal þátttakenda á Degi raddarinnar.

… og allir vilja vera á sviðinu

Sunnudaginn 26. október kl. 13.50-17.30

 

Litaspjald raddarinnar verður skoðað á Degi raddarinnar í heimi óperunnar, ljóðasöngva, þjóðlegra stefja og íslenska einsöngslagsins. Meðal stórsöngvara sem koma fram eru Diddú, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Bergþór Pálsson og Signý Sæmundsdóttir. Sjá dagskrá á www.gerduberg.is

Dagur hljóðfærisins hefur verið haldinn í Gerðubergi sl. 10 ár og má þar nefna Dag gítarsins, flautunnar og Dag hinna djúpu strengja og er Dagur raddarinnar síðasta dagskráin í þessari seríu. Kynnir er Margrét Bóasdóttir.

Dagurinn er samstarfsverkefni Félags íslenskra tónlistarmanna og Félags íslenskra söngkennara með styrk frá Reykjavíkurborg og Tónastöðinni.
Aðgangseyrir 1.500 kr – frítt fyrir tónlistarnema og 12 ára og yngri.