Einar Jóhannesson og Martin Berkofsky
í Salnum á laugardaginn kl. 17
Draumar, dulhyggja og þjóðlegir tónar er yfirskrift Töfratónleika Einars Jóhannessonar klarínettuleika og Martins Berkofskys píanóleikara í Salnum á laugardaginn kl. 17. Efnisskráin er fjölbreytt, m.a. leika þeir verk eftir Schumann, Þorkel Sigurbjörnsson, Brahms, Howhaness og Beethoven.
Martin Berkofsky er hreint ævintýralegur píanisti. Hann hefur ekki spilað á Íslandi í 20 ár, en það muna margir eftir honum frá því að hann bjó hér á landi. Árið 1982 lenti hann í mótorhjólaslysi hér heima og fór fljótlega af landi brott. Hann var allur negldur saman en var farinn að spila á tónleikum nokkrum vikum síðar. Slysið breytti lífi Martins. Hann var svo þakklátur fyrir lífgjöfina auk þess sem hann lifði af krabbamein árið 2000, að hann ákvað að helga líf sitt góðgerðarstarfsemi það sem eftir væri. Hann kemur aðeins fram á styrktartónleikum og spilar ekki lengur fyrir peninga handa sjálfum sér, heldur rennur allur ágóði til góðgerðarmála. Eftir krabbameinsmeðferðina ákvað hann að hefja maraþonhlaup. Hann hljóp t.d. frá Tulsa í Oklahoma til Chicago og safnaði nógu miklu fé til að kaupa krabbameinsleitartæki handa sjúkrahúsinu í Tulsa þar sem hann hafði fengið lækningu. „Það eru stórir og miklir andar með Martin – hann er ekki alveg af þessum heimi”, segir Einar Jóhannesson.
Einar hefur spilað mikið með Martin í gegnum tíðina. „Martin hefur inspírerað mig. Þegar mikið liggur við og ég get aðstoðað hann spila ég með honum og legg honum lið í þessu kærleiksríka starfi. Ég fæ líka mikið út úr því að geta notað listina til að styrkja góð málefni. Martin er í þessu af lífi og sál og þegar mér bauðst að halda tónleikana í TÍBRÁ í SALNUM núna í september, fannst mér alveg rakið að fá hann heim”.