Heimasíða TMM opnuð aftur

30. júlí 2008 · Fært í Fréttir 

Svo hörmulega vildi til að TMM lenti í vanskilum við Skýrr fyrir klaufaskap og misskilning og hefur síðan verið lokuð í nærri tvær vikur. Nú er búið að greiða úr þessum málum sem betur fer og síðan komin aftur í loftið. Fréttin hér næst á eftir er auðvitað löngu útrunnin, en næstu tónleikar á Gljúfrasteini verða sunnudaginn 3. ágúst. Þá koma fram Ingibjörg Guðjónsdóttir, Óskar Guðjónsson og Ómar Guðjónsson sem kalla sig Ó Ó Ingibjörg.

Ó Ó Ingibjörg

 

Sunnudaginn 3. ágúst kl. 16 mun systkinatríóið Ó Ó Ingibjörg halda tónleika í stofunni á Gljúfrasteini. Aðgangseyrir er aðeins 500 krónur og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Systkinin Óskar, Ómar og Ingibjörgu Guðjónsbörn þarf vart að kynna en þau hafa auðgað íslenskt tónlistarlíf undanfarin ár, Ingibjörg sem klassísk sópransöngkona en Óskar, saxófónleikari og Ómar, gítarleikari í jass- og dægurlagamenningu sl. ára.

Í fjársjóði íslenskra sönglaga hafa systkinin fundið sameiginlegan vettvang þar sem þau eru trú sínum leikmáta og heillandi hljóðheimur ólíkra tónlistarstefna fá að njóta sín í söngperlum liðinna ára auk frumsamdra laga eftir þá bræður Óskar og Ómar.  Hljómdiskurinn Ó Ó Ingibjörg kom út í lok síðasta árs en auk þeirra þriggja spila Tómas R. Einarsson á kontrabassa og Matthías M.D. Hemstock á trommur.

Á Stofutónleikum Gljúfrasteins munu þau systkini flytja efni af disknum auk þess að frumflytja lög eftir Óskar og Ómar við ljóð Halldórs Laxness.

Stofutónleikar Gljúfrasteins verða alla sunnudaga í sumar kl.16, nánar má lesa um dagskrána hér.

Gljúfrasteinn er opinn alla daga í sumar frá kl. 9–17.

Við viljum líka benda á að á morgun fimmtudag kl. 17 verða opnaðar tvær listsýningar í Start Art, Laugavegi 12b. Þar sýna hin spennandi listakona Magdalega Margrét Kjartansdóttir, Bandaríkjamaðurinn Creighton Michael, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir og Þórdís Jóhannesdóttir.

MAGDALENA MARGRÉT KJARTANSDÓTTIR

 

SVART LIST í Forsal  START ART

Magdalena Margrét er starfandi grafíklistamaður og hefur vakið athygli fyrir stór verk þrykkt á pappír. Verkin sem hún sýnir nú eru tréristur er fjalla um fórnina, eilífðina og endurfæðinguna. Hringrásina sem enga byrjun hefur, engan endi.

 

CREIGHTON MICHAEL

BYLGJULENGDIR á Loftinu í START ART
Creighton Michael sem  býr og starfar í New York kom fyrst til Íslands 2004.

Hann vinnur verk sín í ýmsa miðla, en í öllum verkum sínum leggur hann fyrst og fremst áherslu á teikningu. Hann vinnur með liti og þrykk og teiknar á pappír, auk skúlptúrteikninga í ýmis efni.

Listamaðurinn verður viðstaddur opnun sýningarinnar í START ART.

 

INGUNN FJÓLA INGÞÓRSDÓTTIR og ÞÓRDÍS JÓHANNESDÓTTIR

 

FLÖKT í austur- og vestursal jarðhæðar START ART.

Ingunn og Þórdís útskrifuðust báðar úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2007. Frá útskrift hafa þær deilt vinnustofu þar sem þær hafa orðið fyrir áhrifum af verkum hvor annarrar, þrátt fyrir að fást við ólíka miðla. Þær líta á sýninguna sem sjónræna rannsókn sem taka mun breytingum daglega, en með henni vilja þær vekja upp spurningar er varða sjónmenningu, frumleika, höfundarrétt og traust og ferli sköpunar gagnvart hinu fullkláraða verki.

 

 

Sýningum lýkur 27. ágúst.

Opnunartími START ART er þriðjudaga til laugardaga kl. 13 – 17 og eftir samkomulagi.