Til upplýsingar

28. mars 2008 · Fært í Fréttir 

Hluti af Kiljunni sl. miðvikudagskvöld var helgaður breska skáldinu W.H. Auden, til stórrar gleði fyrir aðdáendur hans. Þar var meðal annars sýnd röð óviðjafnanlegra ljósmynda úr safni Morgunblaðsins af Auden í hópi þekktra íslenskra menningarvita og menntamanna meðan lesið var snjallt kvæði eftir ungan íslenskan lækni, Ögmund Bjarnason, sem hann orti til Audens. Áður hafði verið talað um tölublað tímarits þýðenda, Jóns á Bægisá, frá í fyrra sem helgað var Auden og það sýnt á skjánum. Þegar kom að lestrinum úr kvæði Ögmundar var hvorki sýnt né sagt hvaðan kvæðið var tekið þannig að eðlilegast var að halda að það kæmi úr þessu sama hefti af Jóni á Bægisá. Svo var þó ekki. Kvæði Ögmundar birtist í 3. hefti TMM 2007, og um það sagði gagnrýnandinn Heimir Pálsson í bréfi sem birtist hér á heimsíðunni á sínum tíma: “Ljóð Ögmundar læknis til Audens er gersemi.”