Næturtónar hefja göngu sína

28. febrúar 2008 · Fært í Fréttir 

Fjörutíu klukkustundir bætast við dagskrá Rásar 1 á viku

Næturtónar, sígilt næturútvarp evrópskra útvarpsstöðva, hefur göngu sína á Rás 1 í byrjun mars. Með því lokar Rás 1 sólarhringnum og sendir út dagskrá allan sólarhringinn, allan ársins hring, en undanfarin ár hefur Rás 1 sameinast næturúrvarpi Rásar 2 eftir miðnætti.

Í Næturtónum er útvarpað tónleikaupptökum og hljóðritunum af sígildri tónlist víðsvegar að úr Evrópu. Íslenskir nátthrafnar fá þar með aðgang að þeim fjársjóði sem felst í hljóðritasöfnum aðildarstöðva EBU, Sambands evrópskra útvarpsstöðva. Næturtónar með íslenskum kynningum hefjast á miðnætti og standa óslitið þar til morgunútvarp Rásar 1 tekur við. Umsjónarmenn eru Diljá Sigursveinsdóttir, Nathalía Halldórsdóttir og Örlygur Benediktsson

Breytingar á dagskrá Rásar 1

Dagskrá Rásar 1 tekur nokkrum breytingum frá og með 3. mars. Morgunútvarpið hefst þá virka daga klukkan 6.00 og klukkan 6.30 um helgar. Fyrstu fréttir dagsins verða áfram sagðar klukkan 6.00, en að þeim loknum taka þulir Rásar 1 við með þáttinn  Árla dags, sem er alhliða tónlistar- og upplýsingaútvarp. Morgunvaktin, þáttur fréttastofu á Rás 1 hefst klukkan 07:30 á virkum dögum. Morgunvaktin er fréttatengdur þáttur, þar sem tekið er á málefnum líðandi stundar í bland við fjölbreytta tónlist.