Hálfvitar leggja undir sig Húsavík

27. febrúar 2008 · Fært í Fréttir 

Laugardaginn 1. mars hyggst þingeyska æringjastórsveitin Ljótu Hálfvitarnir snúa aftur til heimahaga sinna á Húsavík og mála bæinn hálfvitalegan. Þeir ætla að halda hvorki fleiri né færri en þrenna tónleika þennan dag, fyrir alla þá aldurshópa sem fundist hafa á Húsavík. Þetta verða fyrstu opinberu tónleikar sveitarinnar á nýju ári og þeir fyrstu á heimavellinum um langa hríð.

 

Hálfvitarnir  ætla reyndar að þjófstarta kvöldið áður þegar þeir halda uppi fjörinu á árshátíð Framhaldsskólans á Húsavík en kl. 14 á laugardaginn ætla þeir að mæta galvaskir í Hvamm, dvalarheimili aldraðra á Húsavík, og spila fyrr heimafólk.

Kl. 17 verða svo fjölskyldutónleikar á Fosshótel Húsavík, sérstaklega ætlaðir yngstu kynslóðinni, og verða þeir tónleikar í boði húsvískra fyrirtækja og fleiri aðila og aðgangseyrir því enginn. Um kvöldið verða svo á sama stað tónleikar fyrir fullorðna, nánar tiltekið 18 ára og eldri, og verða það tónleikar í fullri lengd. Húsið opnar kl. 21 og hefjast tónleikarnir kl. 22. Aðgangseyrir á þessa tónleika er kr. 1.500.

 

Ljótu hálfvitarnir eru níu manna stórsveit sem spilar pönkskotið þjóðlagarokk á fjölbreytt safn hljóðfæra. Hljómsveitin leggur mikið upp úr vandaðri textasmíð en yrkisefnin spanna áhugasvið meðlima sveitarinnar, allt frá himnaföðurnum og niður úr.

 

Á efnisskránni verða lög af plötunni Ljótu Hálfvitarnir sem kom út í fyrra í bland við nýtt efni. Einnig verða flutt lög sem sjaldan eru leikin utan þingeyjarsýslna vegna sterkra vísana í mannlíf þar sem gera lögin með öllu óskiljanleg öðrum en innvígðum þingeyingum.