SÖNGVAR, SVÍTUR OG DANSAR
FRÁ 16. OG 17. ÖLD
Næstkomandi sunnudagskvöld 27. janúar kl. 20 verða fluttir í TÍBRÁ, tónleikröðinni í Salnum, söngvar, svítur og dansar frá 16. og 17. öld. Það er altsöngkonan Jóhanna Halldórsdóttir ásamt þeim Hildigunni Halldórsdóttur, sem leikur á barokkfiðlu, Ólöfu Sesselju Halldórsdóttur á viola da gamba og Guðrúnu Óskarsdóttur á semball, sem flytur enska tónlist eftir Henry Purcell, John Blow, Thomas Ford, Thomas Weelkes, Tobias Hume, Henry Lawes, Thomas Morley, Orlando Gibbons, John Dowland og John Eccles á tónleikum sem þær kalla “Music for a while”.
Henry Purcell (1659-1695) er líklega þekktasta nafn enskrar tónlistarsögu á 17. öld. Á stuttri æfi samdi hann fjöldan allan af stórkostlegum sönglögum. Þau eru margvísleg að gerð, dramatísk og flúruð, en líka létt og dansandi. John Blow (1648-1708) var kennari Purcells og orgelleikari við Westminster Abbey, staða sem Purcell tók síðar við. Milli þeirra ríkti mikil og gagnkvæm virðing og vinátta, og heimildir herma að dauði Purcells, langt fyrir aldur fram, hafi verið Blow mikið áfall.
Á þessum tónleikum ferðumst við aftur á seinni hluta 16. aldar og kynnumst fyrirrennurum Purcell, meisturum á borð við Tobias Hume (1579-1645), Thomas Morley (1557-1602), Henry Lawes (1595-1662) og John Dowland (1563 1626). Sönglög þess tíma eru sum hver gædd sannri breskri kímni og kaldhæðni, sum eru ægifögur og heimspekileg, og önnur lýsa vonleysi og trega. Sem sagt nokkurn veginn allt litrófið. John Eccles er af mörgum talinn vera það tónskáld sem brúar bilið milli Purcell og Händel og því tilvalið að kynna verk hans hér á þessum tónleikum.