Bónus fyrir borgarbúa og gesti þeirra

29. desember 2007 · Fært í Fréttir 

Ókeypis aðgangur að Listasafni Reykjavíkur

Frá og með 1. janúar 2008 verður ókeypis aðgangur að Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi, Kjarvalsstöðum og Ásmundarsafni.
Þannig vill Listasafn Reykjavíkur undirstrika að safnið er hluti af sameiginlegum lífsgæðum borgarbúa sem allir eigi að hafa aðgang að. Ákvörðun um að fella niður aðgangseyri var tekin með hliðsjón af reynslu listasafna á Norðurlöndum og Englandi þar sem aðsókn hefur aukist stórlega. Á það ekki síst við hjá hópum sem menningarstofnunum hefur reynst örðugt að ná til. Við þessi tímamót vill Listasafn Reykjavíkur hvetja foreldra til að heita sér og fjölskyldum sínum að fara saman á listsýningar á árinu.  

Um leið og Listasafn Reykjavíkur fellir niður aðgangseyri í öllum húsum sínum, í Hafnarhúsi, Ásmundarsafni og á Kjarvalsstöðum, er opnunartími lengdur. Frá og með 10. janúar verður Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsi opið til 22:00 á fimmtudagskvöldum.  

Von Listasafns Reykjavíkur er að ókeypis aðgangur að söfnunum auðgi enn frekar þá skapandi borg sem Reykjavík er og minni á að sterkt menningarumhverfi er hornsteinn nýsköpunar.