Leiðarvísir að Sturlungu

24. október 2007 · Fært í Fréttir 

Leiðin inn í Sturlungu er torsóttari og villugjarnari en inn í flestar okkar helstu fornsögur. En þeim sem þangað komast opnast stórbrotinn og óviðjafnanlegur heimur með mögnuðum sögupersónum og dramatískum atburðum. Á tveimur kvöldum mun Einar Kárason endursegja með eigin orðum frá helstu viðburðum og leikendum á sviði 13. aldar, með aðalaáherslu á Örlygsstaðabardaga og löngum aðdraganda hans, Flóabardaga og að lokum Flugumýrarabrennu. Tækifæri gefst til umræðna og leiðbeint verður inn um bakdyr sem opnast að veröld þessarar mögnuðu bókar.

Ætlað þeim sem langar að lesa Sturlungu en hafa aldrei getað brotist inn í hana. Einar Kárason segir sögur upp úr Sturlungu, kynnir þannig helstu atburði og lykilpersónur, og dregur upp leiðarvísi inn í söguna.

 

Kennarar: Einar Kárason, rithöfundur.

 

Tími: Þri. 20. og fim. 22. nóv. kl. 20:15-22:00 (2x).

Verð: 8500,-.

Staður: Endurmenntun, Dunhaga 7.