Myndir ársins 2005

24. febrúar 2006 · Fært í Á líðandi stund 

Ný bók með myndunum af sýningunni

Bókin skiptist í kafla eftir efni og fer verðlaunamyndin fremst í hverjum flokki. Þó að gaman sé að sjá myndirnar í fullri stærð á sýningunni er ekki síður merkilegt að hafa bókina hjá sér og rýna í hverja mynd. Þær eru margar hverjar einstaklega áhrifamiklar.

Þess vegna er freistandi fyrir ófaglærða að gera sitt eigið val þegar efnið er sett svona upp í hendurnar á henni. Fréttamynd ársins væri þá án nokkurs vafa mynd Haraldar Jónassonar af Kvennafrídeginum í Reykjavík. Þar má sjá tugþúsundir andlita, en þó eru þau svo skýr að eina konu sá ég á sýningunni benda með vissu á sjálfa sig í mannhafinu! Það væri að vísu erfiðara á myndinni í bókinni.

Íþróttamynd ársins eftir Árna Torfason og portrettmynd ársins af freknótta stráknum í laugunum eftir Braga Þór Jósefsson er ég hæstánægð með og hefði ekki valið öðruvísi sjálf. Þó finnst mér portrettmynd Gunnars Gunnarssonar af Elíasi Mar rosalega flott líka. Hann er náttúrlega svo fótógen maðurinn.

Landslagsmynd ársins af Hornafirði í þoku eftir Pál Stefánsson er mjög fín, en ég hefði samt valið mynd Ragnars Axelssonar af selnum í Jökulsárlóni. Það er svo makalaust að hann skuli hafa fengið ísjaka í laginu eins og sel með á myndina! RAX fullvissaði mig þó um það á sýningunni að hann hefði ekkert átt við myndina og alls ekki fótósjoppað lögunina á jakanum!

Myndaröð Þorkels Þorkelssonar af flóðasvæðunum í Asíu er auðvitað afar sterk, en aðrar raðir eru líka heillandi, til dæmis myndir Kristins Ingvarssonar af heimafæðingu og myndir RAX af smölun á Landmannaafrétti.

Gamanmyndirnar eru ekki margar, og verðlaunamynd Haraldar Jónassonar af arkandi jólatré er yndisleg. Líka er frábær mynd Valgarðs Gíslasonar af þremur asískum stúlkum í hefðbundnum búningum við skilti sem á stendur: “Framsókn fyrir fólkið í landinu”!

Tímaritsmyndir ganga þvert á alla flokka og þar hefði ég valið portrettmynd Teits Jónassonar af Daníel Ágúst Haraldssyni. Myndirnar í flokknum daglegt líf eru alveg dægilegar og engin leið að velja -  en verðlaunamynd Ingólfs Júlíussonar hefði eiginlega átt heima í einum flokki til sem gæti þá heitið “dulræn fyrirbæri”. Þjóðlegasta myndin er svo eftir Þorvald Örn Kristmundsson og sýnir fjóra ofurhuga á besta aldri mismuna sér ofan í ískaldan sjó um hávetur!

Þetta er afskaplega eiguleg bók og er íslenskum ljósmyndurum óskað innilega til hamingju með hana.