Myndlistin um helgina
![]() |
| Rauður gjörningur. |
![]() |
| Hafarnarungi – ætli hann sé reiður, eða bara hugsi? |
Sýning Gjörningaklúbbsins í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi er fyrsta yfirlitssýning hópsins, sem á ellefu árum hefur haldið yfir 200 sýningar bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Sýningar Gjörningaklúbbsins hafa jafnan vakið athygli meðal almennings og verk hans notið mikilla vinsælda. Gjörningum þeirra fylgja ákveðnir töfrar, þeir eru ögrandi og skemmtilegir, og eins og segir í inngangi sýningarskrárinnar eru þeir„ umluktir silki, kossum, fegurð og ást”. Á sýningu Listasafns Reykjavíkur er gerð grein fyrir þróun hópsins síðastliðin ellefu ár og eldri verkum teflt fram með nýjum og áður ósýndum verkum.
Gjörningaklúbbinn skipa Eirún Sigurðardóttir, Jóní Jónsdóttir og Sigrún Hrólfsdóttir en Dóra Ísleifsdóttir starfaði með hópnum á upphafsdögum hans.
Fyrsti opinberi gjörningur hópsins var Kossagjörningurinn sem framinn var í beinni útsendingu í fréttatengdum þætti Sjónvarpsins árið 1996. Kossagjörningurinn vakti athygli almennings á Gjörningaklúbbnum, en kossinn sögðu þær sjálfar vera „aðeins lengri en vinakoss, en örlítið styttri en koss elskenda.“
Listasafn Reykjavíkur gefur út veglega bók um Gjörningaklúbbinn í tilefni af sýningunni. Auk greinar eftir sýningarstjórann Yean Fee Quay er þar að finna hugleiðingar nokkurra samferða- og samstarfsmanna hópsins, m.a. Björk, Sjón, Kristínu Jóhannesdóttur, Þorvald Þorsteinsson, Margréti Vilhjálmsdóttur og Halldór Björn Runólfsson. Sýningin stendur til 21. október.
Uppi í D-sal Hafnarhússins verður opnuð innsetning Jóhannesar Atla Hinrikssonar sem lauk námi frá School of Visual Arts í New York 2005. Listamannsspjall hans verður strax á sunnudaginn kl. 15. Sýningarstjóri hans er Hafþór Yngvason sjálfur. Þetta er fimmta D-salar sýningin en þær eiga að vekja athygli á lofandi listamönnum. Sýningin stendur til 21. október.
Á laugardaginn verða opnaðar tvær sýningar í Listasafni ASÍ við Freyjugötu. Kjartan Ólason sýnir myndverk í Ásmundarsal en Hildur Bjarnadóttir verður með sýningu í Arinstofu og Gryfju sem nefnist Innifalið. Þær standa til 23. september. Sjá nánar á www.asi.is
Í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur verður opnuð ljósmyndasýning Dante: Umkomulaus börn í Afganistan. Hún stendur til 24. október.
Myndirnar á sýningunni sýna börn í Afghanistan í daglegu lífi sem einkennist af óróleika stríðsrekstrar og óstöðugleika á svæðinu eins og alkunna er.
Börnin hafa þurft að þola meira harðræði fyrir níu ára aldur en flest fólk kynnist á heillri mannsævi. Þrátt fyrir þetta skynjar maður hjá þeim einlæga von og styrk til að takast á við framtíðina segir listamaðurinn Dante sem dvaldi í landinu um skeið en hann býr og starfar í Reykjavík.
Dante stundaði nám í Gerrit Rietveld Acadamy í Amsterdam,Hollandi og Institute of American Indian Arts, Santa Fe í Nýju Mexíkó og hefur unnið verk sín að stórum hluta út frá arfleifð sinni sem indíáni.
“Aðal viðfangsefni eða fyrirmyndir sem ég leitast við að fanga eru; hugmyndir um sannleika og fegurð, hreinleiki sálarinnar ásamt sjálfsskoðun í mannkynssögulegu ljósi. Það að vera indíáni hefur stöðug áhrif á listsköpun mína og víkkar út skilning minn á viðfangsefnum. Ég myndi þó ekki fullyrða að sú staðreynd að ég sé indíáni hafi áhrif á alla mína vinnu en ég veit þó að í sumum verkum mínum hef ég tilhneigingu til þess að bera hugmyndafræði indíána saman við hinn nýja heim. Sum verk eru einföld þar sem ég leitast við að ná fram þögulli fegurð á meðan önnur geta komið áhorfandanum í uppnám og jafnvel fá hann til þess að fyllast frumstæðri tilfinningu.”
Í Ljósmyndagalleríinu Fótógrafí, Skólavörðustíg, verður opnuð sérstæð sýning um helgina. Þorvaldur Örn Kristinsson, ljósmyndari á Morgunblaðinu, myndaði hafarnarunga í sumar og sýnir nú svart-hvít portrett af þessum nöfnum sínum. Hann segir sjálfur um myndefnið:
,,Stærsti ránfugl Íslendinga er haförninn sem á latínu nefnist Haliaeetus albicilla. Hann er konungur fuglanna. Tignarlegur svífur hann um fjallasali og virðir fyrir sér bráðina sem á sér einskis ills von. Þetta er Hollywood-stjarna fuglanna, vatnsgreiddur með oddhvasst nef, gula fætur og svartar flugbeittar klær. Haförninn er eitt áhugaverðasta myndefni dýraríkisins.”
Klukkan 14 á sunnudag gengur Hjálmar Sveinsson um sýninguna Ó-náttúra með gestum. Í ferð sinni mun Hjálmar tala um hugrenningar sínar varðandi einstök verk á sýningunni. Hjálmar segir listina vera ónáttúru frá hlýskeiði: “Forsenda listsköpunar er að láta ekki stjórnast af blindum öflum og hvötum náttúrunnar heldur hefja sig yfir hana. Listsköpun felst m.a. í því að búa til eitthvað sem náttúran getur ekki búið til sjálf. Listsköpun er eitt af því sem greinir manninn frá náttúrunni. Sú aðgreining, svo það sé undirstrikað, er forsenda menningar og mennsku, við eigum henni allt að þakka. Menningin og listin eru ónáttúra. Það sem nú sést í Listasafni Íslands er einhvers konar hellamálverk frá hlýskeiði.”
Á Kjarvalsstöðum er nú að ljúka Kjarvalssýningunni K-þættinum og sjálfur sýningarstjórinn, Einar Garibaldi, ætlar að ganga um með gestum á sunnudaginn kl. 15.
Á sýningunni K-þátturinn – Málarinn Jóhannes S. Kjarval leitast sýningarstjórinn Einar Garibaldi Eiríksson við að svipta hulunni af goðsögninni Kjarval og hleypa áhorfandanum beint að verkum meistarans. Að sögn Einars Garibalda eru verk Kjarvals á þessari sýningu tekin til endurskoðunar án listfræðilegra útskýringa, staðreynda um lífshlaup hans, lýsinga á líkamsburðum eða sögum af sérstæðu lundarfari hans. Sýningunni er ætlað að vera tilraun þar sem áhorfendur eru hvattir til að taka þátt í samræðu við málarann og líta á sýningarými Kjarvalsstaða sem áhættusvæði óheftrar hugsunar, fremur en geymslustað ónsertanlegra meistaraverka. Einar Garibaldi býður gestum að ganga með sér um sýninguna þar sem hann leitast við að láta rödd Kjarvals hljóma beint til áhorfenda.

