Spennusögur með Katrínu Jakobsdóttur
![]() |
Á námskeiðinu verða ýmsir ólíkir þættir glæpasagna teknir til skoðunar. Farið verður yfir upphaf glæpasagnaritunar og rýnt í hugmyndir fræðimanna og höfunda um fléttur og formúlur í glæpasögum.
Skoðaðar verða ólíkar hefðir glæpasagna og rætt um þekktar glæpasögur og kvikmyndir í sögunni. Meðal höfunda sem koma við sögu eru Agatha Christie, Dashiell Hammett, Raymond Chandler, hjónin Sjöwall og Wahlöö sem og nýrri höfundar frá Bretlandi, Bandaríkjunum og Norðurlöndunum. Kíkt verður í ólíka kima nýrra glæpasagna og kannað hvernig höfundar hafa nýtt þetta form fyrir margháttuð samfélagsleg skilaboð. Í seinni hlutanum verða skoðaðar nýjar íslenskar glæpasögur og höfundar koma í heimsókn og ræða sögur sínar.
Kennari: Katrín Jakobsdóttir, íslenskufræðingur
Tími: Þri. 25. sept. – 16. okt. kl. 20:15-22:00 (4x).
Verð: 16,600.-
Staður: Endurmenntun, Dunhaga 7.
Skráning og nánari upplýsingar um þetta námskeið og fjöldamörg önnur á http://www.endurmenntun.hi.is/
