Valdimar skáldaspíra

27. maí 2007 · Fært í Fréttir 

87. Skáldaspírukvöldið verður nk. þriðjudag 29.maí kl. 20 og er um leið síðasta skáldaspírukvöldið fyrir sumarfrí. Skáldaspíran hefur svo göngu sína á ný í september á hausti komandi.

Skáld kvöldsins er Valdimar Tómasson sem fagnar útkomu nýrrar ljóðabókar, sinnar fyrstu: Enn sefur vatnið. JPV gefur út.

Bókin verður til sölu í Eymundsson og gestir mega taka með sér hressingu frá Te og Kaffi. Skipuleggjandi kvöldsins er sem fyrr: Benedikt S. Lafleur…