Ari ormur í ævintýrum
![]() |
Bók handa hressum börnum sem vilja læra að lesa
Stafrófsvísur Ara orms eftir Kristján Jóhann Jónsson (Hólar) leiða börn um króka og kima stafrófsins – því Ari þessi ánamaðkur átti ekki heima í blómabeði heldur í stafrófsljóði. Hann langar “til að lesa það / og lagði óhræddur þegar af stað.” Leið hans liggur út úr bókinni og hann lokkar lesanda með sér, hittir Celsíus mæli, vel lesna en leiðinlega dúfu og fleiri skrýtna fugla, kött, nagdýr, Rauðhettu og úlfinn, telpukorn af timburmaðkaætt og ýmsa fleiri.
Hver vísa byrjar á sínum staf og þeir eru allir með, líka c, q, x og z! Kvæðið er sniðugt og vel ort eins og von var með þennan höfund. “Ævintýrisins endir varð / að Ari skreið inn í blómagarð. / Í hann með fingrum tveim ég tók / og tróð honum inn í stafrófsbók.”
Ekki spillir að Freydís Kristjánsdóttir hefur myndskreytt ferðalag þessa fróðleiksfúsa Ara með teikningum sem biðja um að láta lita sig.
