Bretónskt brum
![]() |
Ritlistarhópur Kópavogs heldur vorblót í ljóðum á þremur tungumálum laugardaginn 28. apríl 2007 kl. 15 í skosku kránni ivð Lækjargötu (Highlander)
Heiðursgestir:
Bernez Tangi
Gaël Morin
Yann Le Rousic
skáld frá Bretaníu
Öll þessi skáld hefur Ólöf Pétursdóttir þýtt og gefið út í safnritinu Dimmir draumar sem kom út í fyrra. “Þar er svo ótal margt sem minnir á íslenska ljóðhugsun,” segir hún í Inngangi. “Skammdegisdrungi, nálægð við himin og haf, áleitin hugsun um dauðann, samgangur milli heima …”
Titilljóð bókarinnar er eftir Yann Le Rousic:
Yfir skuggfylkingu nátta
Blikar föl úlfanna týra
Þar gengur einfarinn mánaskrefum
Og æpir þögn sína villibarns
Í hringiðu gnýsins stjarnmorðingja
Honum orðið allt ljóst og allt dimmt.
