Myndlistin um helgina

26. apríl 2007 · Fært í Fréttir 
Gáið að því að nú eru síðustu forvöð að sjá verk Jóhanns Briem í Listasafni Íslands.

Nú líður að Listahátíð í Reykjavík með öllum sínum opnunum, og þess vegna eru síðustu forvöð að sjá margar merkar sýningar um helgina. Þetta á við um Foss á Kjarvalsstöðum, sýningar Pierre Huyghe og Geirþrúðar Hjörvar í Hafnarhúsi og yfirlitssýningar Jóns Engilberts og Jóhanns Briem í Listasafni Íslands. Um þá sýningu verður leiðsögn í fylgd Hannesar Lárussonar myndlistarmanns á sunnudag kl. 14. Hann mun draga fram erótísku sveifluna í verkum Jóns og bera þau saman við blíðu og innileika verka Jóhanns.

“Síðustu forvöð” á líka við um sýningu alþýðulistakonunnar Guðlaugar I. Sveinsdóttur í Gerðubergi og frönsku hönnunarsýninguna í Gerðarsafni þar sem líta má margan eigulegan grip (og líka ansi marga undarlega!).

En í Anima gallerí, Ingólfsstræti 8, verður opnuð sýning á verkum Kristins G. Harðarsonar á morgun föstudag. Hún stendur til 19. maí.

Þeir sem verða á ferðinni um Suðurnes á næstu vikum ættu að gá að því að í Duushúsum, Reykjanesbæ, stendur yfir sýningin Vagg og velta – Rokkárin á Íslandi sem Poppminjasafn Íslands stendur að. Hún er opin kl. 13-17.30 daglega og það er ókeypis inn.