Sætar stelpur (og strákar)

29. október 2005 · Fært í Á líðandi stund 
Þegar sléttað er úr flipanum kemur hinn helmingur andlitsins í ljós – en hver er stúlkan?

Ný bók um fegurðarsamkeppni á Íslandi 1930-2005

Þegar ég kom til Dublin til náms haustið 1964 var Ísland ekki orðið eins frægt og síðar varð. Hvað er svona merkilegt við Ísland og Íslendinga? var ég iðulega spurð. Ég byrjaði á að segja frá hverum og eldfjöllum en samnemendur mínir höfðu ekki áhuga á svoleiðis. Þá sagði ég stolt frá sigrum Friðriks Ólafssonar við skákborð heimsins, en félagar mínir horfðu á mig tómum augum. Ókei, sagði ég, ungfrú alheimur í fyrra var íslensk! Þá loksins var hlustað á mig. Og ég taldi upp fleiri stúlkur en hina íðilfögru Guðrúnu Bjarnadóttur sem höfðu staðið á verðlaunapöllum fyrir fegurð árin á undan, þangað til félagar mínir létu bera á vonbrigðum með að eintakið frá Íslandi skyldi ekki vera betri fulltrúi fyrir þessa fögru þjóð.

Það er gaman að skoða bók Sæunnar Ólafsdóttur, Brosað gegnum tárin – fegurðarsamkeppnir á Íslandi, sem Almenna bókafélagið var að gefa út, þó að nokkuð þjáningarfullt sé að lesa texta þar sem keppni er hiklaust höfð í fleirtölu í annarri hverri setningu. Kennarinn minn í barnaskóla barði svo rækilega inn í kollinn á nemendum sínum að það væri bannað að engin leið er að gleyma því. Þessi bók fer þó langt með að venja mann við hina bönnuðu fleirtölu.

Hér er sagt frá hverri keppni, ár fyrir ár, í stuttum og hnitmiðuðum texta og myndum sem auðvitað eru nauðsynlegri hér en víða annarsstaðar. Iðulega er birtur fróðleikur úr blöðum, lýsingar blaðamanna á keppninni, viðtöl við sigurvegara, lesendabréf með og á móti og brot úr umræðum í samfélaginu ef einhverjar urðu. Og alls konar smáatriði eru tínd til: Fróðlegt er til dæmis að sjá þegar stúlkurnar fara að birtast á blaðaauglýsingum (fyrir þvottaduft, Axminster gólfteppi og fleira!) og gaman að rifja upp þegar Kvennalistakonur í borgarstjórn mættu á borgarstjórnarfund í sundbolum til að stríða Davíð Oddssyni borgarstjóra sem hafði látið óvarleg orð falla um kjörþokka fegurðardísa. Mörgu var maður búinn að gleyma, til dæmis því að Hófi hin fagra bar aldrei titilinn “fegurðardrottning Íslands” því hún var í öðru sæti á eftir Höllu Bryndísi Jónsdóttur árið 1985.

Það sem mig vantar eru upplýsingar um tvennt: Hver er Sæunn Ólafsdóttir og hver er stúlkan á kápumyndinni?