Myndlistin um helgina

30. mars 2007 · Fært í Fréttir 
Þessi er í Nýló.
Frönsk stofubyssa.

Í Ásmundarsafni við Sigtún verður opnuð sýning á nýjum teikningum við íslenskar þjóðsögur á morgun, laugardag. Þetta er sérstæður viðburður vegna þess að myndirnar eru við sögur sem ekki hafa komið út á bók heldur völdu tólf teiknarar sögur úr hljóðritunum í þjóðfræðasafni Árnastofnunar og gestir geta hlustað á sögurnar af bandi meðan þeir skoða teikningarnar. Snjöll hugmynd og verður spennandi að sjá hvernig til tekst.

Á morgun verður líka opnuð sýningin Fata Morgana í Nýlistasafninu við Laugaveg 26 – gengið inn frá Grettisgötu, en á bak við hana standa listamennirnir Sirra Sigrún Sigurðardóttir og Guðrún Benónýsdóttir. Hún stendur til 29. apríl.

Í Listasafni ASÍ opnar Borghildur Óskarsdóttir sýninguna Opnur á morgun. Uppistaðan er ættar- og fjölskyldusaga sem tengist ýmsum stöðum á sunnanverðu landinu, náttúru og húsum. Hún stendur til 29. apríl, og á sumardaginn fyrsta, 19. apríl kl. 15, tekur Borghildur á móti gestum og gengur með þeim um sýninguna.

Í dag verður opnuð sérstök páskasýning í Gallerí Turpentine við Ingólfsstræti. Hún stendur til 14. apríl. Og hinum megin við götuna, í Anima gallerí, verður opnuð sýning á Úrtaki Spessa sem stendur til 21. apríl.

Í gær var opnuð í Gerðarsafni í Kópavogi sýning á framsækinni franskri hönnun sem stendur til 29. apríl. Á sýningunni eru 40 ný verk af fjölbreyttu tagi eftir nokkra af fremstu hönnuðum Frakka, til dæmis Philippe Starck, Laurence Brabant og Matali Crasset. Sýningin nefnist ‘Vísanir í samtímahönnun í París’ og er sýningarstjóri Cedric Morriset, sem vakið hefur athygli í listaheiminum fyrir nýstárlegt og framsækið sýningarhald undanfarin misseri. Sýningin er haldin í tengslum við listahátíðina Pourquoi Pas? – franskt vor á Íslandi.

Meðal annarra sýninga sem ástæða er til að minna á er innsetning Geirþrúðar Finnbogadóttur í D sal Hafnarhússins. Hún er annar ungi myndlistarmaðurinn sem þar fær að skapa sérstakt verk og stendur sýningin til 29. apríl. Í Hafnarhúsinu eru líka sýningar Pierre Huyghe og Errós svo hægt er að eyða þar heilum degi með léttum leik.

Í Anima Gallerí Iðuhúsinu við Lækjargötu sýnir Bjarni Sigurbjörnsson Iður til 15. apríl, en í Galleríi I8 við Klapparstíg sýnir Ragnar Kjartansson ný málverk og myndbandsverk undir yfirskriftinni Samviskubit. Í Listasafni Íslands eru yfirlitssýningar á Jóhanni Briem og Jóni Engilberts sem ekki má missa af. Leiðsögn verður um sýningu Jóhanns kl. 14 á sunnudag í fylgd Valgerðar Bergsdóttur myndlistarmanns. Hún mun fjalla um verk hans út frá persónulegum kynnum af listamanninum.