Myndlistin um helgina
![]() |
| Verk eftir Pierre Huyghe. |
- er aðallega frönsk
Sýning hins heimsþekkta franska myndlistarmanns Pierre Huyghe í Hafnarhúsinu heitir Live Show as Exhibition (eða kannski Fagnaðargarðurinn)og stendur til 29. apríl. Ljósmyndasýning Etienne de France í Arinstofu Listasafns ASÍ heitir Life Sucks og fjallar um sýndarheima internetsins. Ljósmyndasýningarnar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur heita Marglitt útlit - sýning á myndum Jo Duchene – og Sund og gufa - myndir Damien Peyret. Þær standa til 26. maí.
Á sunnudaginn kl. 15 ætlar Guja Dögg, deildarstjóri byggingarlistardeildar Listasafns Reykjavíkur, að fjalla um verk arkitektsins le Corbusier í Hafnarhúsinu, og tengist fyrirlesturinn sýningu Huyghes.
Enn er hægt að sjá Frelsun listarins í Listasafni Íslands og verður sérstök leiðsögn um sýninguna á safnanótt kl. 20 og 22.30 í fylgd Dagnýjar Heiðdal listfræðings. Það er hluti af sérstakri hátíðardagskrá í safninu og vil ég sérstaklega minna á að kl. 21 halda þeir franskmenntuðu snillingar Pétur Gunnarsson og Sigurður Pálsson fyrirlestur (eða fyrirlestra) um evrópskar bókmenntir og listir í upphafi 20. aldar. Að venju verður leiðsögn um sýninguna á sunnudaginn kl. 14 í fylgd Hörpu Þórsdóttur listfræðings og verður það sú síðasta því þann dag lýkur sýningunni.
Við minnum líka á ögrandi og örvandi sýningu Hallgríms Helgasonar í Gallerí Turpentine við Ingólfsstræti, Kodak Moments, sýningu Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur í Anima hinum megin við götuna, Mynd ársins í Gerðarsafni, sýningu Rúríar í Gerðubergi, frönsku listamennina í Nýló og þrjár spennandi sýningar á Kjarvalsstöðum.
