Svart og hvítt

31. janúar 2010 · Fært í Leikdómar Silju ·  

Leiksýningarnar tvær sem ég sá um helgina voru býsna ólíkar. Ekki segi ég kannski að ég hafi farið öfganna á milli en ekki langt frá því. Á föstudagskvöldið sáum við hjónin Tilbrigði við stef eftir Strindberg og Þór Rögnvaldsson í salnum uppi í Iðnó. Í gær lá leiðin á Algjöran Sveppa eftir Gísla Rúnar Jónsson í Íslensku óperunni. Hvort tveggja voru skemmtilegar sýningar en svolítið eins og svart og hvítt. Lesa meira

Hnípin þjóð í vanda

24. janúar 2010 · Fært í Leikdómar Silju ·  

Inni í geysistóru fuglabúri híma sjö manneskjur. Við og við hellast yfir þær stórir haugar af gluggaumslögum sem þær síðan vaða í. Haugarnir hækka og hækka. Þær gera fálmkenndar tilraunir til að taka á málunum, flokka umslögin, raða þeim, en sumir halda bara á þeim í fanginu; æ stærri fangfylli. Meðan á þessu gengur segja þær hver annarri sögur eða segja skoðanir sínar á hversdagslegum hlutum – hvað það sé hroðalega mikið vatn í hakkinu sem okkur er selt – eða leita ráða um hvað þær eigi að hafa í matinn. Þetta er ekki ólíkt því hvernig við tölum þegar við hittum fólk sem við þekkjum lítið, kannski í fermingarveislum – frá því sem við vorum að fá okkur, frá undarlegum atvikum sem komu fyrir okkur sjálf eða einhvern í kringum okkur. Lesa meira

Mala domestica

22. janúar 2010 · Fært í Leikdómar Silju ·  

Heimilisböl er verra öðru böli, út á það ganga ófá leikrit og sögur, enda óhamingjusamar fjölskyldur óhamingjusamar hver á sinn hátt, eins og skáldið benti á. Í leikriti Sigtryggs Magnasonar, Bráðum hata ég þig, sem var frumsýnt í Nemendaleikhúsinu í gærkvöldi, hittum við fjórar húnvetnskar systur. Steinunn, Snæfríður og Anna búa enn á heimaslóðum, Halla ein hefur slitið sig þaðan, farið „suður“. En daginn sem leikritið gerist kemur hún aftur heim af því mamma hennar er dáin og hún ætlar að mæta í jarðarförina. Í rútunni hittir Halla Árna, sem er á leið í Víðidalinn líka, og kippir honum með sér í jarðarför og erfisdrykkju þótt hún hafi aldrei séð hann áður. Lesa meira

,,Þetta er teater”

16. janúar 2010 · Fært í Leikdómar Silju ·  

Margt kom mér skemmtilega á óvart þegar ég fór að lesa mér til um Faust í tilefni af uppsetningu Vesturports á samnefndu verki á stóra sviði Borgarleikhússins. Til dæmis það að persóna þjóðsagna og bókmennta á sér raunverulega fyrirmynd ef marka má Salmonsens konversationsleksikon frá 1918, dr. Johann Faust, þekktan farandspámann og svartagaldramann sem fæddur var um 1490. Hitt líka að hann var orðin fræg sögupersóna á mörgum bókum áður en Marlow skrifaði sitt fræga leikverk um hann (1589), og fjölmörg leikrit fyrir brúðuleikhús og manna fylgdu uns Goethe tók til við hann um aldamótin 1800. Síðan hefur lítið lát orðið á endursköpun þessara sagna í bókmenntunum. Lesa meira

Fokking fokk – sorrí

9. janúar 2010 · Fært í Leikdómar Silju ·  

Myndin á plakati leikritsins Munaðarlaus sem var frumsýnt í Norræna húsinu í gær (8.1.10) virðist við fyrstu sýn alveg út í hött, en hún öðlast mikinn merkingarauka þegar maður er búinn að sjá sýninguna. Á myndinni eru tvö lítil systkini, dálítið stærri stelpa, alvarleg og ábyrg á svip, og skælbrosandi yngri bróðir. Þau eru í náttfötum, og á bak við þau er jólatré. Það er greinilegt að hún heldur verndarhendi yfir honum. Lesa meira