Er virkilega best að vera heima?

28. september 2009 · Fært í Leikdómar Silju ·  

Karli Marx varð einhvern tíma að orði að stórir atburðir mannkynssögunnar gerðust fyrst sem harmleikir en endurtækju sig svo sem farsi. Írska leikskáldið Enda Walsh fer með þessa kenningu alla leið og svolítið lengra í verkinu Heima er best (The Walworth Farce) sem var frumsýnt í Borgarleikhúsinu á föstudagskvöldið undir stjórn Jóns Páls Eyjólfssonar. Lesa meira

Ljóð dagsins er eftir Snorra Hjartarson

15. september 2009 · Fært í Óflokkað ·  

Ljóð dagsins er eftir Snorra Hjartarson, úr bókinni Á Gnitaheiði frá 1952.

MÉR DVALDIST OF LENGI

Mér dvaldist of lengi það dimmir af nótt
haustkaldri nótt á heiði.

Ég finn lynggróna kvos við lækjardrag
og les saman sprek í eldinn

barnsmá og hvít og brotgjörn skrek.
Sjá logarnir leika við strauminn

rísa úr strengnum með rödd hans og glit.
Ó mannsbarn á myrkri heiði

sem villist í dimmunni vitjaðu mín
vermdu þig snöggvast við eldinn

fylgdu svo læknum leiðina heim.

Frida, Harry og Heimir

13. september 2009 · Fært í Leikdómar Silju ·  

Stóru leikhúsin opnuðu dyr sínar fyrir fyrstu gestum haustsins um helgina og hófu bæði vetrarstarfið á íslenskum verkum. Það var um það bil það eina sem þau áttu sameiginlegt. Á stóra sviði Þjóðleikhússins var okkur sögð saga mexíkóska myndlistarmannsins Fridu Kahlo á föstudagskvöldið, átakanleg ævisaga vörðuð slysum og svikum; á litla sviði Borgarleikhússins var á laugardagskvöldið rifjað upp sextán ára gamalt framhaldsleikrit í útvarpi sem segja má að hafi verið upphafið að samfelldri sigurgöngu Spaugstofuhópsins á ljósvakanum.

Lesa meira

Ljóð dagsins er Harðindi eftir Þorstein frá Hamri

7. september 2009 · Fært í Ljóð dagsins, Óflokkað ·  

Ljóð dagsins er eftir Þorstein frá Hamri og heitir Harðindi. Það er úr bókinni Lifandi manna land, ort árið 1960 að sögn skáldsins. Erindi ljóðsins við okkar daga blasir við.

Harðindi

Harðnar á dalnum
og þó er einsog sum hús séu vel byrgð
ógrynni fjár ógrynni kynlegs silfurs
þekur túnbleðlana einsog sandrof
útlendíngasnjór
segja börnin og þora ekki að snerta
nema sum fyrir áeggjan miðaldra feðra

sumt fólk
þykist kenna þar einn og einn eyri frá sér
erfiðismenn og slíkir
harðnar á dalnum og sumum
á að nægja sitt nöldur:
jú að sönnu má kalla það framtak
að deyja

harðnar á dalnum
en dýrmætt hve sum spor varðveitast
í þessum brunagaddi
augum vorum til vöku
harðnar á dalnum og minni vort
styrkist í vindum
meðan einstaklíngsfrelsið fyllir svöl brjóstin

Nýtt TMM

3. september 2009 · Fært í Fréttir, Óflokkað ·  

Út er komið nýtt tölublað af Tímariti Máls og menningar sem að þessu sinni er að mestu helgað Bókmenntahátíð í Reykjavík. Hátíðin stendur yfir dagana 6. -12. september og von á fjölmörgum góðum gestum af því tilefni.

Heftið er afar gott undirbúningsrit fyrir þá sem vilja kynna sér ýmsa af erlendum höfundum hátíðarinnar en í því er fjallað um:

- Kader Abdolah
- Naja Marie Aidt
- Tariq Ali
- Jesse Ball
- Junot Díaz
- Gintaras Grajauskas
- Johan Harstad
- Benn Q. Holm
- Luis López Nieves
- Sofi Oksanen
- Anne B. Ragde
- David Sedaris
- Ngugi Wa Thiong’o

Í ritinu má einnig finna hugleiðingu eftir Salvöru Nordal um að Íslendingar taki að sníða sér stakk eftir vexti og Tryggva Gíslason um myndir sem til eru af Jónasi Hallgrímssyni; Hjalti Hugason les Íslandsklukkuna í kreppunni en Sigurjón Árni Eyjólfsson guðfræðingur og prestur skrifar rækilega um táknheiminn sem liggur bókum Bjarna Bjarnasonar til grundvallar. Páll Valsson ritar dóm um Amtmanninn á Einbúasetrinu eftir Kristmund Bjarnason, ljóð birta Vésteinn Lúðvíksson, Birgir Sigurðsson, Kristján Þórður Hrafnsson, Sveinbjörn I. Baldvinsson og Sverrir Norland og ný smásaga er eftir eftir Guðmund Brynjólfsson. Ádrepu ritsins skrifar Ármann Jakobsson sem bregst við hugleiðingum Gunnars Karlssonar í TMM 2:09 um skáldsögu hans Vonarstræti. Áskriftarsími er 5755600 en netfangið tmm@forlagid.is.