Ljóð dagsins: Árstíðarsöngl 2

31. júlí 2009 · Fært í Ljóð dagsins ·  

Að liggja á meltunni í miðjum fjallahring með hvítri bungusteinunn_sigurdar

og strítum

meðan búalið hirðir og snýr.

Að nýta gargið í hvaða fugli sem er til yndisauka

og éta mikið af hundasúrum.

Kitla kærastann með puntstrái bak við eyrað, krakkar mínir,

fara í mjög stutta heilsubótargöngu

leggjast aftur milli þúfna

með sól í hásuðri og eitt ferkantað ský á himninum til hægri.

Það er lífið, krakkar mínir.

- Steinunn Sigurðardóttir

Seabear og Amiina í Bæjarbíói

28. júlí 2009 · Fært í Á líðandi stund ·  

Íslensku hljómsveitirnar Seabear og Amiina koma fram á tónleikum í Bæjarbíói í Hafnarfirði annað kvöld. Seabear hefur ekki komið fram á tónleikum síðan í október á síðasta ári; sagan segir að sveitin hafi verið önnum kafin við að taka upp plötu sem er væntanleg í janúar á næsta ári. Þá er nokkuð liðið frá því að Amiina kom fram hér á landi ef frá eru skildir tónleikar þar sem sveitin kom fram ásamt Shugo Tokumaru í Norræna húsinu fyrir fáum vikum.

Seabear og Amiina nálgast báðar popptónlist á varfærinn hátt og lágstemmdan, og Bæjarbíó er fullkomið fyrir tónleika af þessu tagi. Hugurinn hvarflar ósjálfrátt til frábærra tónleika sem fóru fram fyrir fimm árum þegar Slowblow og múm leiddu saman hesta sína í sama húsi.

Við bætist að miðarnir eru á gjafverði, aðeins 1500 krónur.

Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og miðasala fer fram í 12 tónum við Skólavörðustíg.

Ljóð dagsins fjallar um skáldin og skáldskapinn

21. júlí 2009 · Fært í Ljóð dagsins ·  

Ljóð dagsins er eftir Bólu-Hjálmar og fjallar um skáldskap. Það er fjögur erindi en hér birtast einungis það fyrsta og það síðasta; í miðerindunum sem hér er sleppt deilir Hjálmar á ungu skáldin (sem sé Jónas) fyrir drambsemi.

Ei er kyn þótt ort sé hér á landi,
hvar upplýsingin geisar lítt stöðvandi,
svo kvæðasmiðir kalla má
komu út úr steinum blá
með hljóðin há.
Gamburmosar gefa frá sér töðu,
gnóg í mærðar hlöðu.

- – -
Íslenskan er orða frjósöm móðir,
ekki þarf að sníkja, bræður góðir,
né heilum stela hendingum
og hugmyndanna vendingum,
með skjall og skrum,
frá þeim sem við fátækt sína þreyja
og fordildarlaust deyja.

Ljóð dagsins er um fífil

20. júlí 2009 · Fært í Ljóð dagsins ·  

Eilífðar smáblóm frá 1940 er með indælustu bókum Jóhannesar úr Kötlum þrátt fyrir stríð og viðsjár í heiminum; skáldið heitir þar á náttúruna að gefa sér aftur „gleði mína og söng“, yrkir ættjarðarljóð sem hefst á línunni „Ísland er hjarta mitt, rautt eins og blessað blóð“ og tekur svo til við að hylla það úr náttúrunni sem vekur söng hans; einkum hið smágerða: snjótittlinginn og aðra smáfugla, lækinn, dýragras – og blessaðan fífilinn:

FÍFILKVÆÐI

Fífill, grænna grasa ljós,
gullið uppi um bæ og fjós,
efnið góða í fína festi,
- fagnaðu mér nú, vinur besti!

Sjáðu hvernig sólin skín,
- sálin mín og karfan þín
örar verða af einum geisla,
eins og það sé stærðar veisla.

Manstu forðum – þú varst þá
þetta sem ég treysti á;
beiska mjólkurblöndu þína
bar ég oft á vörtu mína.

Nú er ég orðinn iljasár,
og mér liði kannski skár,
ef ég bæri að undum mínum
ofurlítið af safa þínum.

Heillin mín! Ég heiti á þig:
hjálpaðu nú upp á mig,
áður en sest okkur hrollur
og við verðum biðukollur.

Minn herra á aungvan vin – nema… – Dagbók flettarans 18.07.09

18. júlí 2009 · Fært í Dagbók flettarans ·  

Ólafur Stephensen gerir tilraun til að ræskja sig mynduglega í Staksteinum dagsins. Þar er fréttaskýringum Agnesar Bragadóttur andmælt, djúpri og ábúðarmikilli röddu. Það mun koma fyrir lítið. Það verður eins og að skvetta vatni á gæs.

Morgunblaðið hefur nú verið um nokkurra vikna skeið helgað agneskum fréttaskýringum og heiftúðugum andstöðuskrifum við ríkisstjórn, Icesave og ESB. Meira að segja hinn einatt geðslegi vísnadálkur Péturs Blöndal var einn daginn helgaður leirbornu níði um Steingrím J. Sigfússon. Gott ef Ferdinand var ekki farinn að þruma gegn Icesave yfir sinni mæddu eiginkonu.

Á meðan gengur einn af helstu aðstandendum Icesave, Kjartan Gunnarsson, um eins og hver annar borgari sem mark eigi að taka á og ávítar meira að segja Þorgerði Katrínu fyrir það hvernig hún hagar þingstörfum sínum eins og hann hafi eitthvað yfir henni að segja eða sé yfirleitt í þeirri stöðu að geta tekið til máls þannig að fólk hlusti.

DV er í ham um þessar mundir og tekur í lurga á fjárglæframönnunum – svona flestum að minnsta kosti. Það er bara Egill Helgason sem lætur jafnt yfir alla ganga.

Að vísu sér maður stundum skrýtnar fyrirsagnir í DV eins og þá að best sé að búa á Seltjarnarnesi – eins og slíkt sé hægt að reikna út frá fasteignagjöldum eða einhverjum slíkum búðarlokusjónarmiðum. Það er áreiðanlega misskilingur. Hins vegar hefur blaðið verið duglegt að beina kastljósinu að óhæfuverkum bankasvindlaranna og gegnir þannig mikilsverðu hlutverki.

Það skaut þó skökku við um síðustu helgi að blaðið skyldi í úttekt sinni á gáfaðasta fólki landsins útnefna þar sjálfan skapara kerfis og hruns, Davíð Oddsson, og líka Svöfu Grönfeldt einn aðalhöfund frægrar skýrslu um ímynd Íslendinga sem full var af þvaðri um „víkingseðli“ Íslendinga, og virkaði á mann eins og tilraun til að skapa nokkurs konar fræðilegan grundvöll að ránskapnum um sparifjárlendur Evrópu.

Þarna var líka Halldór Laxness sem flettari hélt að væri látinn fyrir nokkru.

En svo var þarna að vísu líka bæði bráðgáfað fólk og sprelllifandi eins og Vigdís forseti og Illugi Jökulsson.

Gáfað fólk: Davíð Þór skrifar alltaf skemmtilega bakþanka með góðri og vandaðri hugsun; og nú síðast í laugardagsblaðið. Pistillinn fjallar að þessu sinni um flettara og fjölskyldu hans, þó að svo kunni að virðast fram að síðustu málsgrein að hann fjalli um annað.

Annar góðpenni er Þorsteinn Pálsson. Flettari er af gömlum íhaldsættum og sjálfsagt íhald inn við beinið, að minnsta kosti rótgróinn velunnari Sjálfstæðisflokksins þótt misjafnlega sýni hann dálæti sitt. En nú eru skrýtnir tímar og full ástæða til að veita Sjálfstæðismönnum heilræði, því að upplausnarástandið innan flokksins snertir okkur öll og gerir það nánast óbærilegt að fylgjast með þingstörfum. Af hverju bakkar flokkurinn ekki bara duglega til baka – alla leið á þann punkt þegar hann tók röngu beygjuna? Og fær Þorstein Pálsson til að leiða flokkinn á ný?

Ragna Árnadóttir vinnur verk sín hljóð og virðist öllum mönnum góð af fréttum að dæma. Hún ætlar samkvæmt forsíðu Fréttablaðsins enn að styrkja stöðu saksóknarans sérstaka og færa efnahagsbrotadeild frá ríkislögreglustjóra. Ekki mun af veita. Það mun þurfa samfellt átak allra mestu reikningshausa og lagaspekinga landsins til að greiða úr flækjunum sem reikningshausar pappírsvíkinganna skildu eftir sig. Þar þarf gáfað fólk.

Annars er Fréttablaðið hálf júlílegt um þessar mundir. Enginn Páll Baldvin, enginn Bergsteinn, engin Júlía Margrét; meira að segja lítið um þætti af einkennilegum mönnum frá Jakobi Bjarnari.

Hins vegar er þar mættur glaðbeittur í viðtal Jón Ólafsson viðskiptamaður. Og óspar á heilræði sín þjóðinni til handa um það hvernig hún á að efla orðspor sitt í viðskiptum. Hann vill ráða þjóðinni heilt í viðskiptasiðferðisefnum og tekur eindregið undir hugmyndir Davíðs Oddssonar um hina svokölluðu „dómstólaleið“.

Sú leið virðist í fljótu bragði snúast um að láta Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólaf Börk dæma í Icesave-málinu. Undirtektir hafa að vonum verið hálf daufar jafnvel þótt Davíð telji sig sýnilega hafa ástæðu til að ætla að úrskurður þeirra verði íslensku þjóðinni hagstæður. Menn hafa jafnvel óttast að þá kynni að spyrjast út hvernig að ráðningu þessara manna var staðið í Hæstarétt á sínum tíma. Icesavemálið snýst nefnilega líka um það hvort íslenska ríkið ætlar að láta taka sig alvarlega.

Nú hefur Davíð bæst liðsauki.

Hannes Hólmsteinn gæti nú sagt – með eða án gæsalappa: Minn herra á aungvan vin – nema Jón Ólafsson.
Guðmundur Andri Thorsson

Ljóð dagsins: Nú er veður til að skapa (brot)

13. júlí 2009 · Fært í Pistlar ·  

En himinhnettir breytast

og hjörtu manna þreytast

á öllu sem þau eignast

er áður þráðu heitast.

Hvað stoðar loks hin fegursta

stjarna í sólkerfinu?

Þú stelst á fund við minningarnar

sem að eitt sinn skinu.

*

Og þú munt verða leiður

til lengdar á að skapa,

og lætur allar stjörnur

úr greipum þínum hrapa.

Því hamingja þín mælist

við það sem þér er tapað,

og þá er lífið fagurt

og eftirsóknarvert.

*

Því aldrei hafa fegurri

himinstjörnur hrapað

En himinstjörnur þær,

sem þú sjálfur hefur gert.

(Orti Tómas Guðmundsson, líkast til á fallegum degi.)

Bréf til blaðsins: vegna TMM

8. júlí 2009 · Fært í Bréf til blaðsins ·  

Í kjölfar mistakanna sem áttu sér stað við innheimtu árgjaldsins fyrir tímaritið höfum við heyrt frá mörgum dyggum áskrifendum en Forlagsskrifstofunni barst nýverið afar fallegt bréf frá einum þeirra.

- – -

Til Forlagsins

Ég er ein þeirra sem fékk vanskilarukkun nú um mánaðamótin. Þar sem ég tilheyri þeirri kynslóð sem var alin upp við að standa í skilum hringdi ég í Forlagið til þess að kanna málið. Fyrir svörum varð kona úr ykkar hópi sem útskýrði af kurteisi og ljúfmennsku að þarna hefðu orðið mistök og var ég beðin afsökunar. Fyrir þetta varð ég mjög þakklát.

Svo barst mér bréf. Þar var innheimtubréfið enn útskýrt og við áskrifendur Tímarits Máls og menningar, sem erum líka dyggir viðskiptavinir Forlagsins, beðin afsökunar. Bréfið var skrifað af látlausri kurteisi sem stakk í stúf við þann kaldranalega anda sem ríkt hefur á Íslandi undanfarin ár, þar sem öllum stóð nokkurn veginn á sama um alla. Bréfið sýndi aftur á móti virðingu fyrir viðskiptavininum.

Ég er bókaormur og hlakka til að koma og fá að velja mér bók.

Með kveðju,
Ásdís

Ljóð dagsins: Hús næði eftir Þórarin Eldjárn

7. júlí 2009 · Fært í Pistlar ·  

thoreldjGefast ekki grið
í griðastað

guðað á glugga
bankastjórans:

má ég vera?
heima

- – -

(úr ljóðabók Þórarins Eldjárn, Ydd, frá 1984.  Kvæðasafn Þórarins Eldjárn kom út hjá Vöku-Helgafelli í fyrra).

Mistök við innheimtu TMM

1. júlí 2009 · Fært í Óflokkað ·  

Forlaginu hefur borist mikill fjöldi fyrirspurna í dag, 1. júlí, vegna innheimtubréfs sem áskrifendur að Tímariti Máls og menningar fengu í morgun.

Mistök áttu sér stað þegar greiðsluseðillinn var sendur út, svo nokkrir dagar liðu án þess að unnt væri að greiða kröfuna og á meðan söfnuðust upp vanskilagjöld hjá áskrifendum. Þetta var að sjálfsögðu ekki ætlunin og hér með biðjumst við afsökunar á þessum mistökum.

Til þess að áskrifendur þurfi ekki að greiða áfallin gjöld bjóðum við þeim á að leggja 6.000 krónur (ársgjaldið án vanskilagjalda) inn á reikning okkar gegnum heimabanka eða í bankaútibúi. Reikningsupplýsingar eru hér að neðan:

Bnr. 311, hb. 26, nr. 3423
Kt. 600201-2390

Við biðjumst aftur afsökunar á mistökunum og vonum að þið njótið lestursins.