Steinar í djúpinu sýnt að nýju
![]() |
| Harpa Arnardóttir fer beinlínis fram úr sjálfri sér í sýningunni Steinar í djúpinu. |
og LR kynnir Sannleikann
Vegna mikillar eftirspurnar verða nokkrar sýningar á verkinu Steinar í djúpinu í janúar. Það er sem kunnugt er byggt á höfundarverki Steinars Sigurjónssonar. Sýningin vakti mikla athygli í nóvember og ljóst að um það bil sem hún var að renna sitt skeið var fólk að átta sig á því að hér væri viðburður sem leikhúsáhugafólk mætti ekki láta fram hjá sér fara. Til að byrja með verða tvær sýningar sunnudagana 18 og 25 janúar og er ekki rétt að bíða með að panta miða.
Verkið
Steinar í djúpinu er nýtt íslenskt leikverk, byggt á skáldheimi Steinars Sigurjónssonarþ Þetta er ekki leikgerð á einu tilteknu verki eftir hann heldur sjálfstætt leikhúsverk sem sækir innblástur í allt hans höfundarverk og að hluta til í ævi hans og örlög. Verkið er vegferð um “kvasseggjað grjót”, ferðalag um sagnaheim Steinars; um þorpið þar sem lúin þil lykta af hlandi og svita og fullir dusar blanda í svartan dauðann; um ægifegurð og erkiljótleika djúpsins. Tónlist kemur hér mjög við sögu, takturinn í tungutakinu, músíkin í málnotkuninni og knéfiðlan og slagharpan eru sjaldan langt undan, enda tekur ferðalagið mið af sónötunni sem hentar kynjaheimi Steinars vel.
Hópurinn
Rúnar Guðbrandsson, leikstjóri
Guðni Fransson, tónlist
Móeiður Helgadóttir, leikmynd
Garðar Borgþórsson, lýsing
Ásta Hafþórsdóttir, leikgervi
Myrra Leifsdóttir, búningar
Leikarar
Árni Pétur Guðjónsson, Birna Hafstein, Erling Jóhannesson, Björn Ingi Hlmarsson, Harpa Arnardóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Karl Guðmundsson, Ólafur Darri Ólafsson, Steinunn Knútsdóttir
Hljómsveit
Guðni Fransson, Daníel Þorsteinsson, Bryndís Halla Gylfadóttir
Tilvitnanir í gagnrýni
Það er fljótsagt að þessi hópur gerði kraftaverk á sviðinu í Hafnarfirði, lét myrkan texta Steinars lifna á tragíkómískan hátt svo að ég veit að hann hefði notið sýningarinnar í botn hefði hann lifað að fá að sjá hana.”
- Silja Aðalsteinsdóttir, www.tmm.is
“…þetta er lofsverð tilraun, djörf og metnaðarfull.”
“Ætli það sé ekki helsta afrek leikstjórans og þeirra ágætu listamanna, sem með honum starfa, hversu makalausar myndir þeim tekst að særa fram af þessum dýrðlega ljótleika? Sjáið bara þau Árna Pétur Guðjónsson og Hörpu Arnardóttur í hlutverkum hjónanna, Kidda og Láru. Hvílíkur leikur – og hvílík leikgervi!”
- Jón Viðar Jónsson. DV.
“…maður er fullur aðdáunar á vinnu Rúnars Guðbrandssonar, hvernig hann á skondinn hátt skeytir saman hinum ólíku þráðum og hvað hann dregur upp fyrir okkur margar fallegar og áhrifamiklar myndir úr verkum Steinars að því er virðist fyrst og fremst til að skynja.”
- María Kristjánsdóttir. Mbl.
“…mjög spennandi sýning og Rúnar Guðbrandsson á hrós skilið fyrir leikgerðina og tónlistarfólkið skilaði sínu verki af einstakri alúð.”
- Elísabet Brekkan. Fréttabl.
“…þessi sýning er leikræn upplifun þar sem vandað er til verka og möguleikar miðilsins nýttir til hins ýtrasta. Þessi sýing er bæði ljót og falleg eins og skáldskapurinn sem hún byggir á og situr eftir í manni, – ekki beinlínis í hjartanu heldur öllu heldur í kviðarholinu.”
- Þorgerður E. Sigurðardóttir. Víðsjá.
Pétur Jóhann Sigfússon á svið
Föstudaginn 7. febrúar næstkomandi verður Sannleikurinn, sprenghlægilegur einleikur eftir Pétur Jóhann Sigfússon og Sigurjón Kjartansson, frumsýndur á Litla sviði Borgarleikhússins. Í Sannleikanum leitar Pétur svara við áleitnum spurningum um lífið og tilveruna. Þetta er í fyrsta sinn sem stjarnan úr Nætur- og Dagvaktinni leikur á sviði og því er eftirvæntingin mikil. Miðasala hefst í dag, 30. desember í Borgarleikhúsinu.
Pétur Jóhann Sigfússon þeysist um víðan völl í uppljóstrun sinni um lífsins sannleika í nýju verki eftir Sigurjón Kjartansson og Pétur Jóhann Sigfússon. Hinn alvitri þykist hafa fundið tilgang lífsins. Í Sannleikanum fást svör við spurningum eins og: Er dagurinn styttri hjá hundum? Afhverju eru fjögur hólf fyrir þvottaefni? Láta peningar jörðina snúast? Hvernig fara þeir að því? Og á ég eftir að endurholgast sem skítafluga? Pétur Jóhann sem hefur notið vinsælda sem leikari í sjónvarpi og kvikmyndum stígur nú í fyrsta sinn á leiksvið í þessu einlæga og sprenghlægilega leikverki undir styrkri stjórn Stefáns Jónssonar.
Það er valinn maður í hverju rúmi í uppsetningu Sannleikans. Stefán Jónsson, leikari, hefur á undanförnum árum haslað sér völ sem leikstjóri í fremstu röð og var valinn leikstjóri ársins við fyrstu afhendingu Grímuverðlaunanna árið 2003. Hann hefur meðal annars leikstýrt verkunum: Kvetch, Sporvagninn Girnd, Héri Hérason, Túskildingsóperan, Forðist okkur, Belgíska Kongó, Leg, Óhapp! og Baðstofan.
Höfundur: Sigurjón Kjartansson og Pétur Jóhann Sigfússon
Leikstjóri: Stefán Jónsson
Leikmynd: Snorri Freyr Hilmarsson
Tónlist: Halldór Ágúst Björnsson
Leikarar: Pétur Jóhann Sigfússon
Verkefnastjóri: Svanlaug Jóhannsdóttir
